Bæjarstjórn Fjallabyggðar

273. fundur 25. júní 2026 kl. 17:00 - 18:15 í Tjarnarborg Aðalgötu 13 Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson 1. varaforseti
  • Pálmi Blængsson 2. varaforseti
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
  • Kristín Ágústa Eiðsdóttir aðalfulltrúi
  • Kristinn Kristjánsson aðalfulltrúi
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir aðalfulltrúi
  • Guðjón M. Ólafsson varafulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu þess efnis að taka til afgreiðslu fundargerð bæjarráðs frá 25. júní.

Samþykkt með 7 atkvæðum að taka fundargerð bæjarráðs frá 25. júní til afgreiðslu á fundinum.

1.Bæjarráð Fjallabyggðar - 920. fundur - 5. júní 2026

Málsnúmer 2605008FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 10 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 3 í fundargerðinni sem borinn er upp sérstaklega.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 3 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 1.3 2410007 Stækkun fráveitu - Primex
    Bæjarráð Fjallabyggðar - 920. fundur - 5. júní 2026 Bæjarráð samþykkir framlagða kostnaðaráætlun með fyrirvara. Bæjarstjóra falið að vinna málið og ræða við forsvarsmenn Primex varðandi framhaldið. Bókun fundar Guðrún Sif Guðbrandsdóttir vék af fundi við afgreiðslu á lið 3 í fundargerðinni.

    Liður 3 í fundargerðinni samþykktur með 6 atkvæðum.

2.Bæjarráð Fjallabyggðar - 921. fundur - 11. júní 2026

Málsnúmer 2606005FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 12 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tóku Tómas Atli Einarsson og Guðjón M. Ólafsson.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

3.Bæjarráð Fjallabyggðar - 922. fundur - 18. júní 2026

Málsnúmer 2606009FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 13 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum liðum 1, 2 og 7 sem eru sér liðir á dagskrá fundarins.
Samþykkt
Til máls tók Guðrún Sif Guðbrandsdóttir.

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum liðum 1, 2, og 7, samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Bæjarráð Fjallabyggðar - 923. fundur - 25. júní 2026

Málsnúmer 2606011FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 9 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 162. fundur - 8. júní 2026

Málsnúmer 2606001FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 11 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Til máls tóku Tómas Atli Einarsson og Kristinn Kristjánsson.

Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

6.Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 334. fundur - 10. júní 2026

Málsnúmer 2606004FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 9 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 5 sem borinn er upp sérstaklega.
Samþykkt
Til máls tóku Tómas Atli Einarsson, Guðjón M. Ólafsson, Kristinn Kristjánsson, Helgi Jóhannsson og Pálmi Blængsson.

Fulltrúar D-lista lögðu fram eftirfarandi bókun við afgreiðslu á lið 4 í fundargerðinni:

"Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að vetrarþjónusta í Fjallabyggð sé bæði öflug og hagkvæm. Áður en ráðist er í nýtt útboð teljum við eðlilegt að kanna til fulls hvort nýta megi framlengingarákvæði núverandi samnings, enda liggur fyrir að slíkur möguleiki er fyrir hendi með samþykki aðila.

Við leggjum því til að í bæjarráði verði lögð fram niðurstaða samtals við núverandi verktaka um hvort vilji og forsendur séu til að framlengja samninginn. Samhliða verði skoðað hvort hægt sé, með samkomulagi, að þróa þjónustuna áfram með skýrari kröfum og nútímalegri vinnubrögðum, svo sem með ferilvöktun (GPS), bættri skráningu og eftirfylgni, auk endurskoðunar á kröfum um tækjakost og afkastagetu.

Að mati Sjálfstæðisflokksins væri þetta skynsamleg leið til að meta hvort hægt sé að ná fram þeim umbótum sem sveitarfélagið stefnir að án þess að fara strax í umfangsmikið útboðsferli. Um leið fengi bæjarráð betri forsendur til að taka upplýsta ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag snjómoksturs og hálkuvarna í Fjallabyggð."

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 5 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • 6.5 2606014 Athugasemdir vegna fyrirhugaðrar flotgufu á Ólafsfjarðarvatni
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 334. fundur - 10. júní 2026 Formaður víkur af fundi við afgreiðslu málsins.

    Nefndin felur sviðsstjóra að svara erindinu miðað við umræður á fundinum.
    Bókun fundar Pálmi Blængsson vék af fundi við afgreiðslu á lið 5 í fundargerðinni.

    Liður 5 í fundargerðinni samþykktur með 6 atkvæðum.

7.Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 9. fundur - 11. júní 2026

Málsnúmer 2606002FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 10 liðum og er borin upp í heild sinni
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd Fjallabyggðar - 11. fundur - 15. júní 2026

Málsnúmer 2606007FVakta málsnúmer

Fundargerðin er í 9 liðum og er borin upp í heild sinni.
Samþykkt
Fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar 2026 - 2030

Málsnúmer 2605056Vakta málsnúmer

Lagðar eru fram tilnefningar félags eldri borgara á Siglufirði og í Ólafsfirði í öldungaráð Fjallabyggðar. Lagt er til að Ólafur Baldursson og Ólafur Þór Ólafsson verði aðalmenn í öldungaráði og Pálína Pálsdóttir og Brynhildur Bjarkadóttir til vara frá Siglufirði og Rögnvaldur Ingólfsson og Þorbjörn Sigurðsson verði aðalmenn í öldungaráði og Anna María Guðlaugsdóttir og Björn Þór Ólafsson til vara frá Ólafsfirði.
Samþykkt
Framlagðar tillögur um trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum Fjallabyggðar samþykktar með 7 atkvæðum.

10.Sumarleyfi bæjarstjórnar 2026

Málsnúmer 2606041Vakta málsnúmer

Lögð er fram eftirfarandi tillaga:

"Bæjarstjórn felur bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála í samræmi við 33. grein samþykktar um stjórn Fjallabyggðar þar til bæjarstjórn kemur saman á ný."
Samþykkt
Samþykkt með 7 atkvæðum.

11.Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2602004Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem óskað er eftir kjöri á landsþingsfulltrúum sem sitji á landsþingum Sambandsins. Fjallabyggð hefur 2 fulltrúa á landsþingum og jafnmarga til vara.

Samþykkt
Í samræmi við samþykkt frá 272.fundi bæjarstjórnar er samþykkt með 7 atkvæðum að aðalmenn Fjallabyggðar á landsþingum Sambands íslenskra sveitarfélaga verði Helgi Jóhannsson H-lista og Jóhann K. Jóhannsson S-lista og til vara verði Kristinn Kristjánsson H-lista og Pálmi Blængsson S-lista.

12.Ráðning bæjarstjóra

Málsnúmer 2605057Vakta málsnúmer

Fyrir liggur framlenging á viðaukasamningi við Þóri Hákonarson sem gildir frá 1. júní 2026 og þar til nýr bæjarstjóri hefur verið ráðinn og tekinn til starfa.
Samþykkt
Fyrirliggjandi viðaukasamningur samþykktur með 7 atkvæðum.

13.Viðauki við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2605003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga bæjarráðs að viðauka á fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 þar sem heildaráhrif fjárhagslega eru 15 milljónir í aukna fjárfestingu til þess að klára malbikun og fleira á tjaldsvæðið í Ólafsfirði. Af rekstrarreikningi er viðhaldskostnaður af íþróttahúsi Siglufirði færður yfir á viðhald gatnakerfis að upphæð 4,5 milljónir króna.
Samþykkt
Fyrirliggjandi tillaga bæjarráðs að viðauka við fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 samþykkt með 7 atkvæðum.

14.Flugvallarsvæðið á Siglufirði

Málsnúmer 2602059Vakta málsnúmer

Á 272. fundi bæjarstjórnar þann 4. júní 2026 var samþykkt kauptilboð frá Viking Heliskiing ehf. í fasteignir Fjallabyggðar á flugvellinum á Siglufirði þ.e. tækjahús og þjónustumiðstöð. Fyrirvari var á kaupum um að ytra birði húsana sé í góðu lagi við afhendingu, þ.e. að þau haldi vatni og vindum, að engir lekar séu inni í húsinu og engin mygluvandamál. Komi í ljós leki eða mygla dragast viðgerðir á því af afsalsgreiðslu. Það ákvæði sætti Fjallabyggð sig ekki við og því varð ekki af kaupsamningi. Nú liggur fyrir nýtt kauptilboð frá sömu aðilum sem hljóðar uppá kr. 12.000.000- og eru án ofangreindra fyrirvara. Bæjarráð hefur samþykkt tilboðið fyrir sitt leiti og vísaði því til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Samþykkt
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tilboð frá Viking Heliskiing í samræmi við tillögu bæjarráðs og samþykkir jafnframt að heimila bæjarstjóra að fela löggiltri fasteignasölu að sjá um skjalagerð vegna sölunnar.

15.Umsókn um styrk til kaupa á nýju ómtæki fyrir HSN í Fjallabyggð

Málsnúmer 2606062Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Hollvinafélagi HSN í Fjallabyggð sem stofnað var 24.febrúar 2026. Fyrsta verkefni Hollvinafélagsins er að safna fé til kaupa á nýju ómskoðunartæki fyrir HSN í Fjallabyggð og leitar félagið nú eftir stuðningi einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og opinberra aðila til kaupa á slíku tæki þar sem áætlaður kostnaður er 12-14 milljónir króna.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarstjórn fagnar frumkvæði Hollvinafélags HSN og vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Fundi slitið - kl. 18:15.