Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 2602004

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 907. fundur - 05.02.2026

Fyrir liggur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem fram kemur að landsþing sambandsins verður haldið dagana 23.-25.september n.k. og fer fram á Akureyri. Fjallabyggð á rétt á tveimur fulltrúum á landsþingið í samræmi við samþykktir sambandsins auk þess sem bæjarstjóri hefur rétt til setu á landsþinginu.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 273. fundur - 25.06.2026

Fyrir liggur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem óskað er eftir kjöri á landsþingsfulltrúum sem sitji á landsþingum Sambandsins. Fjallabyggð hefur 2 fulltrúa á landsþingum og jafnmarga til vara.

Samþykkt
Í samræmi við samþykkt frá 272.fundi bæjarstjórnar er samþykkt með 7 atkvæðum að aðalmenn Fjallabyggðar á landsþingum Sambands íslenskra sveitarfélaga verði Helgi Jóhannsson H-lista og Jóhann K. Jóhannsson S-lista og til vara verði Kristinn Kristjánsson H-lista og Pálmi Blængsson S-lista.