Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 334. fundur - 10. júní 2026

Málsnúmer 2606004F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 273. fundur - 25.06.2026

Fundargerðin er í 9 liðum og er borin upp í heild sinni að undanskildum lið 5 sem borinn er upp sérstaklega.
Samþykkt
Til máls tóku Tómas Atli Einarsson, Guðjón M. Ólafsson, Kristinn Kristjánsson, Helgi Jóhannsson og Pálmi Blængsson.

Fulltrúar D-lista lögðu fram eftirfarandi bókun við afgreiðslu á lið 4 í fundargerðinni:

"Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að vetrarþjónusta í Fjallabyggð sé bæði öflug og hagkvæm. Áður en ráðist er í nýtt útboð teljum við eðlilegt að kanna til fulls hvort nýta megi framlengingarákvæði núverandi samnings, enda liggur fyrir að slíkur möguleiki er fyrir hendi með samþykki aðila.

Við leggjum því til að í bæjarráði verði lögð fram niðurstaða samtals við núverandi verktaka um hvort vilji og forsendur séu til að framlengja samninginn. Samhliða verði skoðað hvort hægt sé, með samkomulagi, að þróa þjónustuna áfram með skýrari kröfum og nútímalegri vinnubrögðum, svo sem með ferilvöktun (GPS), bættri skráningu og eftirfylgni, auk endurskoðunar á kröfum um tækjakost og afkastagetu.

Að mati Sjálfstæðisflokksins væri þetta skynsamleg leið til að meta hvort hægt sé að ná fram þeim umbótum sem sveitarfélagið stefnir að án þess að fara strax í umfangsmikið útboðsferli. Um leið fengi bæjarráð betri forsendur til að taka upplýsta ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag snjómoksturs og hálkuvarna í Fjallabyggð."

Fundargerðin í heild sinni að undanskildum lið 5 samþykkt með 7 atkvæðum.
  • .5 2606014 Athugasemdir vegna fyrirhugaðrar flotgufu á Ólafsfjarðarvatni
    Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 334. fundur - 10. júní 2026 Formaður víkur af fundi við afgreiðslu málsins.

    Nefndin felur sviðsstjóra að svara erindinu miðað við umræður á fundinum.
    Bókun fundar Pálmi Blængsson vék af fundi við afgreiðslu á lið 5 í fundargerðinni.

    Liður 5 í fundargerðinni samþykktur með 6 atkvæðum.