Umsókn um styrk til kaupa á nýju ómtæki fyrir HSN í Fjallabyggð

Málsnúmer 2606062

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 273. fundur - 25.06.2026

Fyrir liggur erindi frá Hollvinafélagi HSN í Fjallabyggð sem stofnað var 24.febrúar 2026. Fyrsta verkefni Hollvinafélagsins er að safna fé til kaupa á nýju ómskoðunartæki fyrir HSN í Fjallabyggð og leitar félagið nú eftir stuðningi einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og opinberra aðila til kaupa á slíku tæki þar sem áætlaður kostnaður er 12-14 milljónir króna.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarstjórn fagnar frumkvæði Hollvinafélags HSN og vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 935. fundur - 02.10.2026

Fyrir liggur umsókn um styrk til kaupa á nýju ómtæki fyrir HSN í Fjallabyggð. Áætlaður kostnaður við kaup á ómskoðunartækinu ásamt nauðsynlegum aukabúnaði er um 12-14 milljónir króna. Hollvinafélag HSN í Fjallabyggð leitar því eftir stuðningi einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og opinberra aðila til að gera þetta mikilvæga verkefni að veruleika.
Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar
Bæjarráð tekur vel í erindið og vísar því til gerðar fjárhagsáætlunar 2027.