Ráðning bæjarstjóra

Málsnúmer 2605057

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 272. fundur - 04.06.2026

Fyrir liggur tillaga þess efnis að staða bæjarstjóra skuli auglýst og að gerður verði tímabundinn ráðningarsamningur við sitjandi bæjarstjóra þar til ráðið hefur verið í stöðuna.
Samþykkt
Helgi Jóhannsson H-lista lagði fram eftirfarandi tillögu og bókun:

"Í málefnasamningi sem lagður var hér fram til kynningar, kemur fram að meirihlutinn er sammála því að staða bæjarstjóra verði auglýst. Gengið hefur verið frá því við Þóri Hákonarson, skrifstofustjóra, að hann gegni starfi bæjarstjóra þar til ráðið hefur verið í stöðuna. Tímabundinn ráðningasamningur skal útbúin og lagður fyrir bæjarráð."

Samþykkt með 4 atkvæðum. Bæjarfulltrúar D-lista sitja hjá við afgreiðsluna.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 922. fundur - 18.06.2026

Fyrir liggur framlenging á viðaukasamningi við Þóri Hákonarson sem gildir frá 1. júní 2026 og þar til nýr bæjarstjóri hefur verið ráðinn og tekinn til starfa.
Samþykkt
Fyrirliggjandi framlenging á viðaukasamningi samþykkt.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 273. fundur - 25.06.2026

Fyrir liggur framlenging á viðaukasamningi við Þóri Hákonarson sem gildir frá 1. júní 2026 og þar til nýr bæjarstjóri hefur verið ráðinn og tekinn til starfa.
Samþykkt
Fyrirliggjandi viðaukasamningur samþykktur með 7 atkvæðum.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 924. fundur - 02.07.2026

Umsóknarfresti um starf bæjarstjóra lauk 28. júní s.l.
Lagt fram til kynningar
Alls sóttu 22 aðilar um starf bæjarstjóra í Fjallabyggð en það er ráðningastofan Intellecta var fengin til að sjá um að auglýsa starfið. Ánægjulegt hvað mikið var um góðar umsóknir og næsta skref er að fá umsækjendur í viðtal. Til stendur að birta lista yfir umsækjendur.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 925. fundur - 09.07.2026

Fyrir liggur listi umsækjenda um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar en 22 umsóknir bárust um starfið og dró einn umsækjandi umsókn sína til baka.
Lagt fram til kynningar
Eftirtaldir sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar:

Aðalheiður Sigursveinsdóttir - Stjórnunarráðgjafi
Anna Lind Björnsdóttir - Verkefnastjóri
Arnljótur Bjarki Bergsson - Ráðgjafi
Ásgeir Sveinsson - Verkefnastjóri
Ásmundur Friðriksson - Rithöfundur og fv. alþingismaður
Einar Kristján Jónsson - Fv. sveitarstjóri
Elsa Guðrún Jónsdóttir - Fjármála- og verkefnastjóri
Hafdís Huld Björnsdóttir - Framkvæmdastjóri
Hilmar Vilberg Gylfason - Sérfræðingur
Jóhann Skagfjörð Magnússon - Skólastjóri
Jón Hrói Finnsson - Stjórnsýsluráðgjafi
Jórunn Ósk Frímannsdóttir - Verkefnastjóri
Kári Gautason - Ráðgjafi
Kjartan Þór Ragnarsson - Sveitarstjóri
Lilja Birgisdóttir - Verkefnastjóri
Maríanna Hugrún Helgadóttir - Fv. formaður og framkvæmdastjóri
Rut Jónsdóttir - Viðskiptafræðingur
Sigurður Sigurðsson - Rekstrarstjóri
Starri Reynisson - Deildarstjóri
Þórir Hákonarson - Bæjarstjóri
Ægir Örn Arnarson - Sérfræðingur

Lagt fram til kynningar.