Bæjarráð Fjallabyggðar

485. fundur 31. janúar 2017 kl. 08:00 - 10:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir aðalmaður, B lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
  • Ármann Viðar Sigurðsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála

1.Markaðs- og menningarfulltrúi - kynning

Málsnúmer 1701089Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs kom markaðs- og menningarfulltrúi Fjallabyggðar Linda Lea Bogadóttir.

Markaðs- og menningarfulltrúi kynnti þau verkefni sem eru efst á baugi í hennar starfi.

2.Trúnaðarmál - viðsk.kröfur

Málsnúmer 1701061Vakta málsnúmer

Niðurstaða bæjarráðs er skráð sem trúnaðarmál.

3.Deiliskipulag miðbæjar Siglufjarðar

Málsnúmer 1601077Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs kom deildarstjóri tæknideildar, Ármann V. Sigurðsson og kynnti drög að deiliskipulagstillögu fyrir miðbæ Siglufjarðar.

Bæjarráð felur deildarstjóra tæknideildar að undirbúa kynningarfund þar sem drögin verða kynnt íbúum Fjallabyggðar.

4.Skálarhlíð, sameining íbúða 2017

Málsnúmer 1701086Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs kom deildarstjóri tæknideildar, Ármann V. Sigurðsson.
Á fjárhagsáætlun 2017 er gert ráð fyrir að sameina tvær smáíbúðir í eina í Skálarhlíð, Hlíðarvegi 45 Siglufirði.

Tekin fyrir ósk deildarstjóra tæknideildar, Ármanns V. Sigurðssonar, um heimild til að halda lokað útboð á sameiningu íbúða 3. hæð í Skálarhlíð og að eftirtaldir aðilar fái að bjóða í verkið:
Berg ehf.
ÓHK Trésmíði ehf.
GJ smiðir ehf.
Trésmíði ehf.
Minný ehf.
SR vélaverkstæði hf.
L-7 ehf.

Bæjarráð samþykkir heimild til lokaðs útboðs.

5.Hvati - Nóri - Stund

Málsnúmer 1701056Vakta málsnúmer

Á 484. fundi bæjarráðs, 24. janúar 2017, var lagt fram minnisblað deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála, Kristins J. Reimarssonar um þrjú vefumsjónarkerfi sem eru sérhönnuð til að halda utan um ráðstöfun frístundastyrkja, nýtingu á íþróttamannvirkjum og yfirsýn og utanumhald á hvatagreiðslum.
Bæjarráð óskaði eftir frekari upplýsingum áður en afstaða yrði tekin til málsins.

Viðbótargögn lögð fram.

Bæjarráð samþykkir að vísa þessu máli til gerðar fjárhagsáætlunar 2018.

6.Sorphirða í Fjallabyggð 2017 - athugasemdir

Málsnúmer 1701017Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri upplýsti bæjarráð að hann hefði fengið ábendingu frá íbúum í Fjallabyggð varðandi sorphirðu, þar sem innihald allra þriggja tunna var losað í sama sorphirðubílinn og þar af leiðandi flokkun ekki til neins. Þetta hefur í för með sér aukinn kostnað vegna aukins flutningskostnaðar og kostnaðar við sorpurðun.
Þetta stríðir á móti þeim markmiðum sem bæjarfélagið hefur sett sér í umhverfismálum.

Bæjarráð felur deildarstjóra tæknideildar að hafa samband við forsvarsmenn Íslenska gámafélagsins varðandi þetta mál.


7.Aðalfundur Eyþings 2016

Málsnúmer 1608045Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Eyþings 2016, sem haldinn var 11. og 12. nóvember 2016 í Langanesbyggð.

8.Ný reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit hjá Mannvirkjastofnun

Málsnúmer 1701078Vakta málsnúmer

Í erindi Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, frá 19. janúar 2017, er óskað umsagnar fyrir 10. febrúar 2017, um framkomin drög að reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit.

Bæjarráð óskar eftir umsögn slökkviliðsstjóra Fjallabyggðar, Ámunda Gunnarssyni.

9.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2017

Málsnúmer 1701004Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar eftirfarandi fundargerðir:
Skipulags- og umhverfisnefnd frá 25. janúar 2017.
Hafnarstjórn frá 26. janúar 2017.

Fundi slitið - kl. 10:00.