Bæjarráð Fjallabyggðar

433. fundur 23. febrúar 2016 kl. 16:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • Helga Helgadóttir aðalmaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Trúnaðarmál - starfsmannamál

Málsnúmer 1602025Vakta málsnúmer

Umfjöllun bæjarráðs er skráð sem trúnaðarmál.

2.Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði 2016

Málsnúmer 1602015Vakta málsnúmer

Deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála kom á fund bæjarráðs undir þessum lið.

Á 12. fundi Ungmennaráðs, 10. febrúar 2016 var samþykkt að óska eftir því við bæjarráð að fá að senda tvo fulltrúa auk starfsmanns, á ráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði, sem haldinn er á vegum Ungmennafélags Íslands á Selfossi 16. - 18. mars nk..

Lagt fram minnisblað deildarstjóra fræðslu, frístunda- og menningarmála.
Þar kemur fram m.a. að um sé að ræða mjög gott tækifæri fyrir ungt fólk til að fræðast, upplifa og ekki síst að kynnast jafnöldrum sem eru að fást við sambærileg málefni í öðrum sveitarfélögum. Þetta sé vettvangur til að komast í kynni við ungt fólk vítt og breitt um landið. Mikið sé lagt upp úr virkri þátttöku á þessari ráðstefnu og er m.a. málstofur þar sem hin ýmsu málefni eru rædd.
Fram kemur að áætlaður kostnaður sé kr. 60.700.

Bæjarráð samþykkir erindið.
Kostnaður færist á 06030-4997

3.Veitingasala í Tjarnarborg

Málsnúmer 1601039Vakta málsnúmer

Deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála kom á fund bæjarráðs undir þessum lið.

Á fundi Markaðs- og menningarnefndar þann 14. janúar sl. var samþykkt að auglýsa eftir áhugasömum aðilum sem vildu taka að sér að sjá um veitingasölu í Menningarhúsinu Tjarnarborg þar sem samningur við Veitingahúsið Höllina er að renna út. Auglýst var í Tunnunni og barst ein umsókn frá Veitingahúsinu Höllinni sem lýsti yfir áhuga á því að halda áfram að þjónusta menningarhúsið með veitingasölu.
Markaðs- og menningarnefnd lagði til við bæjarráð, á fundi sínum 15. febrúar 2016, að samningurinn við Veitingahúsið Höllina um veitingasölu í Menningarhúsinu Tjarnarborg yrði endurskoðaður og endurnýjaður.

Bæjarráð felur deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála að ganga til samninga við Veitingahúsið Höllina og leggja drög fyrir bæjarráð eins og fram kom á fundinum.

4.Niðurgreiðslur á rútufargjaldi fyrir framhalds-eða háskólanema skólaárið 2015-2016

Málsnúmer 1508077Vakta málsnúmer

Á 24. fundi fræðslu- og frístundanefndar, 8. febrúar 2016, var samþykkt að leggja til við bæjarráð að reglur um niðurgreiðslu á rútufargjaldi fyrir framhalds- eða háskólanema frá 2013 yrðu afnumdar þar sem nemendur eiga rétt á akstursstyrk frá LÍN. Akstursstyrkur er ætlaður þeim nemendum sem sækja skóla frá lögheimili þ.e. keyra daglega í skólann frá lögheimili sínu.

Bæjarráð samþykkir tillögu fræðslu- og frístundanefndar.

5.Skemmdir/tjón á bifreiðum og tækjum Fjallabyggðar 2016

Málsnúmer 1602057Vakta málsnúmer

Stjórnsýslubifreið Fjallabyggðar skemmdist 29. janúar s.l. Tjón var það mikið að tryggingarfélagið hefur samþykkt að greiða bætur fyrir bifreiðina.

Bæjarstjóri upplýsti um kosti í stöðunni.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að leita eftir kaupum á notuðum bíl.

6.Mál er tengjast Ofanflóðasjóði

Málsnúmer 1503016Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf til Ofnaflóðasjóðs dagsett 23. febrúar 2016.

7.Samningur vegna afnota af Tjarnarborg

Málsnúmer 1602061Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi við Leikfélag Fjallabyggðar vegna afnota af Menningarhúsinu Tjarnarborg í tengslum við uppsetningu á verkinu, Síldin kemur og síldin fer.

Bæjarráð samþykkir samninginn. Kostnaður kr. 120.000, rúmast innan styrkveitinga til menningarmála á fjárhagsáætlun 2016.

8.Þakkarbréf frá félagi eldri borgara í Siglufirði

Málsnúmer 1602046Vakta málsnúmer

Lagt fram þakkarbréf Félags eldri borgara í Siglufirði, dagsett 10. febrúar 2016, fyrir styrk Fjallabyggðar til félagsins fyrir starfsárið 2016.

9.Afgirt hundasvæði í Fjallabyggð

Málsnúmer 1408015Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Jóni H. Jóhannssyni, dagsett 14. febrúar 2016, þar sem kannað er hvort hægt sé að fá snjómokaðan hring á úthlutuðu svæði fyrir hunda.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

10.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi, Lindargata 20b, Siglufirði

Málsnúmer 1602056Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 16. febrúar 2016, er varðar umsögn um nýtt rekstrarleyfi til sölu gistingar að Lindargötu 20b, Siglufirði.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

11.Trúnaðarmál - fasteign

Málsnúmer 1602043Vakta málsnúmer

Umfjöllun bæjarráðs er skráð sem trúnaðarmál.

12.Eigendastefna fyrir þjóðlendur

Málsnúmer 1510100Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá forsætisráðuneytinu, dagsett 17. febrúar 2016, þar sem óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélögum um þær tekjur sem þau hafa haft á árinu 2015, fyrir nýtingu á landi og landsréttindum innan þjóðlendna. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um ráðstöfun tekna af nýtingu lands og landsréttinda inna þjóðlenda, þ.e. í hvaða verkefni voru tekjurnar notaðar í.

Samkvæmt upplýsingum hefur bæjarfélagið engar tekjur af þjóðlendum.

13.Til umsagnar 328. mál frá nefndasviði Alþingis

Málsnúmer 1602052Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um notkun gúmmíkurls úr dekkjum á leik- og íþróttavöllum, 328. mál.

Bæjarstjóri flutti umsögn um málið.

Bæjarráð lítur jákvætt á þingsályktunartillöguna en í fjárhagsáætlun bæjarins 2016 er gert ráð fyrir að skipt verði um gúmmíkurl á sparkvöllum bæjarins.

14.Ályktun stjórnar Heimilis og skóla um niðurskurð í leik- og grunnskólum landsins

Málsnúmer 1602055Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ályktun stjórnar Heimilis og skóla, frá 11. febrúar 2016, um niðurskurð í leik- og grunnskólum landsins.

15.Samantekt ráðstefnunnar "Frítíminn er okkar fag", 16. október 2015

Málsnúmer 1602062Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt af ráðstefnunni.

Bæjarráð samþykkir að vísa samantekt til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd og ungmennaráðs.

16.Reglugerð nr. 1212/2015 - um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga

Málsnúmer 1602001Vakta málsnúmer

Kynning KPMG fyrir sveitarfélög í tengslum við útgefna reglugerð nr. 1212/2015.

17.Framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2015

Málsnúmer 1602064Vakta málsnúmer

Yfirlit frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga lagt fram til kynningar.

18.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2016

Málsnúmer 1601013Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar eftirfarandi fundargerðir:

Hafnarstjórn 78. fundur, 16. febrúar 2016
Markaðs- og menningarnefnd 23. fundur, 16. febrúar 2016.

Fundi slitið.