Bæjarráð Fjallabyggðar

407. fundur 03. september 2015 kl. 12:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • Kristinn Kristjánsson varaformaður, F lista
  • Helga Helgadóttir aðalmaður, D lista
  • Sólrún Júlíusdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Skipurit

Málsnúmer 1412020Vakta málsnúmer

Undir þessum dagskrárlið vék Helga Helgadóttir D-lista af fundi og í hennar stað kom S. Guðrún Hauksdóttir.

Fyrirhugaðar skipuritsbreytingar teknar til umræðu.

Deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála kynnti umsögn um launakostnað og samanburðartölur og vék síðan af fundi undir þessum dagskrárlið.

2.Leikskálar, hönnun viðbyggingar

Málsnúmer 1503043Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tillaga að viðbyggingu og innri breytingum á núverandi húsi leikskólans við Brekkugötu á Siglufirði.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til úrvinnslu í skipulags- og umhverfisnefnd.

3.Vatnsveður - skriðuföll - tjón - Siglufirði 28. og 29.08.2015

Málsnúmer 1508078Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri upplýsti bæjarráð um tjón bæjarsjóðs vegna vatnstjóns á götum, fráveitukerfi, bílastæðum og gangstéttum, 28. og 29. ágúst s.l..

Bæjarstjóri mun gera bæjarráði grein fyrir kostnaði bæjarsjóðs við endurbætur og hreinsun, á næsta bæjarráðsfundi.

Bæjarráð harmar einhliða afstöðu Viðlagatryggingar Íslands, sem kemur fram í minnisblaði til bæjarstjórnar, dagsett 1. september 2015.

4.Vatnsveður - skriðuföll - tjón - Ólafsfirði 28. og 29.08.2015

Málsnúmer 1508079Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri upplýsti bæjarráð um að eitt tjón hafi orðið á húsi við Hlíðarveg í Ólafsfirði og tryggingarfélag húseigenda hefur þegar ákveðið að bæta tjónið.

Nýgerð frárennslislögn frá tjörn í miðbæ Ólafsfjarðar sannaði ágæti sitt í þessum flóðum.

Önnur tjón í Ólafsfirði vegna vatnsflóða voru óveruleg.

5.Aðalfundur Eyþings 2015

Málsnúmer 1508082Vakta málsnúmer

Aðalfundur Eyþings verður haldinn í Félagsheimilinu Hlíðarbæ, Hörgársveit dagana 9. og 10. október nk.

Fulltrúar Fjallabyggðar eru:
Gunnar I. Birgisson
Sigríður Guðrún Hauksdóttir (D)
Sólrún Júlíusdóttir (B)
Steinunn María Sveinsdóttir (S)

Varamenn
Helga Helgadóttir (D)
Hilmar Þór Elefsen (S)
Jón Valgeir Baldursson (B)
Magnús Jónasson (F)

6.Áhrif innflutningsbanns Rússa á Fjallabyggð

Málsnúmer 1508083Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fyrirspurn Byggðastofnunar, dagsett 31. ágúst 2015, um áhrif innflutningsbanns Rússa á Fjallabyggð.

Byggðastofnun í samvinnu við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, er að skilgreina og reikna út áhrif innflutningsbanns Rússa en ætla má að vinnsla og útflutningur sjávarfangs til Rússlands hafi bein áhrif á mörg hundruð störf í landinu.

Verið er að leita til sveitarstjóra þeirra byggðalaga sem eru í Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga.

Spurt er hvort bannið hafi áhrif á byggðarlagið.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu.

7.Fyrirspurn um undanþágur og fjarvistir í samræmdum könnunarprófum

Málsnúmer 1508056Vakta málsnúmer

Í bréfi Menntamálastofnunar, dagsett 24. ágúst 2015, er óskað eftir svörum við fyrirspurn um undanþágur og fjarvistir í samræmdum könnunarprófum haustið 2014.

Bæjarráð felur skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar að veita umsögn.

8.Þjóðarsáttmáli um læsi

Málsnúmer 1508050Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar, Þjóðarsáttmáli um læsi, samningur Fjallabyggðar og ríkisins, sem undirritaður var 31. ágúst 2015 af bæjarstjóra Fjallabyggðar, Gunnari I. Birgissyni, mennta- og menningarmálaráðherra, Illuga Gunnarssyni og fulltrúa landssamtaka foreldra, Heimilis og skóla, Hugborgu I. Harðardóttur.

Bæjarráð fagnar átakinu.

9.Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 18. fundur - 27. ágúst 2015

Málsnúmer 1508006FVakta málsnúmer

  • Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 18. fundur - 27. ágúst 2015 Lagt fram uppgjör fyrir sjómannadagshátíðina sem haldin var í byrjun júní sl.
    Markaðs- og menningarnefnd þakkar sjómannadagsráði Sjómannafélags Ólafsfjarðar fyrir framlagðar upplýsingar og óskar þeim til hamingju með glæsilega dagskrá.
    Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar markaðs- og menningarnefndar samþykkt samhljóða á 407. fundi bæjarráðs.
  • 9.2 1507016 Blúshátíð 2015
    Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 18. fundur - 27. ágúst 2015 Lögð fram greinargerð og uppgjör frá Jassklúbbi Ólafsfjarðar vegna Blúshátíðar 2015.
    Markaðs- og menningarnefnd þakkar stjórn Jassklúbbsins fyrir framlögð gögn. Markaðs- og menningarnefnd hvetur stjórn Jassklúbbsins til að endurskoða fyrirkomulag hátíðarinnar og reyna hefja hana upp til fyrri hæða.
    Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar markaðs- og menningarnefndar samþykkt samhljóða á 407. fundi bæjarráðs.
  • Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 18. fundur - 27. ágúst 2015 Bæjarráð vísar ábendingum bréfritara til umfjöllunar í markaðs- og menningarnefnd. Lagt er til að bæjaryfirvöld skoði hvað hægt sé að gera í markaðsátaki fyrir Ólafsfjörð með það að markmiði að fá fólk til að staldra lengur við.
    Einnig er þeirri hugmynd komið á framfæri hvort ekki sé hægt að gera Ólafsfjörð að Jólabæ Íslands allt árið um kring.
    Markaðs- og menningarnefnd þakkar fyrir framkomna hugmynd. Nefndin vill benda á að nú geta íbúar komið á framfæri hugmyndum/ábendingum til bæjaryfirvalda í gegnum "Mín Fjallabyggð" á heimasíðunni, www.fjallabyggd.is og hvetur hún íbúa til að koma fram með hugmyndir um, hvað hægt sé að gera til að efla markaðssetningu í Fjallabyggð.
    Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar markaðs- og menningarnefndar samþykkt samhljóða á 407. fundi bæjarráðs.
  • Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 18. fundur - 27. ágúst 2015 Fjallabyggð hefur borist boð frá RÚV um að senda lið í árlegan sjónvarpsþátt, þar sem 24 sveitarfélög keppa sín á milli í spurningaleik. Þau átta lið sem komust í fjórðungsúrslit síðasta vetur eru sjálfkrafa með þennan vetur. Hin sextán voru dregin út eftir stærð sveitarfélaganna og var Fjallabyggð eitt þeirra sveitarfélaga sem var dregið úr pottinum fyrir komandi vetur.
    Kallað var eftir tilnefningum í liðið frá íbúum á heimasíðu Fjallabyggðar. Þó nokkrar tilnefningar bárust.
    Markaðs- og menningarnefnd samþykkir að eftirtaldir aðilar skipi lið Fjallabyggðar í Útsvari; Halldór Þormar Halldórsson, Guðrún Unnsteinsdóttir og Ólafur Unnar Sigurðsson.
    Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar markaðs- og menningarnefndar samþykkt samhljóða á 407. fundi bæjarráðs.
  • Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 18. fundur - 27. ágúst 2015 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar markaðs- og menningarnefndar samþykkt samhljóða á 407. fundi bæjarráðs.
  • Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 18. fundur - 27. ágúst 2015 Lagt fram rekstraryfirlit fyrstu sex mánuði ársins. Menningarmál: Rauntölur, 34.896.083 kr. Áætlun, 35.012.866 kr. Mismunur; 116.783 kr. Markaðsmál: Rauntölur, 2.950.367 kr. Áætlun 2.951.000 kr. Mismunur; 1.133 kr. Bókun fundar Afgreiðsla 18. fundar markaðs- og menningarnefndar samþykkt samhljóða á 407. fundi bæjarráðs.

Fundi slitið.