Bæjarráð Fjallabyggðar

310. fundur 03. september 2013 kl. 17:00 - 19:00 á bæjarskrifstofum Ólafsvegi 4, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Þorbjörn Sigurðsson formaður
  • Helga Helgadóttir aðalmaður
  • Egill Rögnvaldsson aðalmaður
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Nýtt starf markaðs- og menningarfulltrúa

Málsnúmer 1306068Vakta málsnúmer

Skrifstofu- og fjármálastjóri lagði fram upplýsingar og samantekt á viðtölum þeim sem tekin voru við umsækjendur. Jafnframt var lögð fram tillaga skrifstofu- og fjármálastjóra, með rökstuðningi, að Kristinn J. Reimarsson verði ráðinn markaðs- og menningarfulltrúi Fjallabyggðar.
Bæjarráð samþykkti tillöguna samhljóða.

2.Málefni Menntaskólans á Tröllaskaga

Málsnúmer 1308056Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að að óska eftir fundi með Mennta- og menningarmálaráðherra vegna málefna Menntaskólans á Tröllaskaga í aðdraganda fjárlagerðar.

3.Skipulag heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi

Málsnúmer 1301049Vakta málsnúmer

Tekin var til umræðu staða og framtíð heilbrigðisþjónustu við utanverðan Eyjafjörð.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fylgja eftir viðræðum frá liðnum vetri um stöðu heilbrigðis- og öldrunarmála við utanverðan Eyjafjörð við heilbrigðisráðherra.

4.Niðurgreiðsla á rútuferðum fyrir háskólanema

Málsnúmer 1308049Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi m. tölvupósti 28. ágúst 2013, frá Eyrúnu Sif Skúladóttur, sem mun stunda nám við háskólann á Akureyri í haust, en hún vildi kanna hvort sveitarfélagið íhugi að greiða niður strætó fyrir námsmenn sem vilja búa í sinni heimabyggð og nýta sér þjónustu þar.

Skrifstofu- og fjármálastjóri lagði fram minnisblað til upplýsingar um fargjöld og reglur sem Dalvíkurbyggð styðst við.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar til fjárhagsáætlunargerðar 2014.

5.Umsagnar leitað vegna umsóknar um lyfjaútibú

Málsnúmer 1308053Vakta málsnúmer

Í erindi Lyfjastofnunar dagettu 29. ágúst 2013, er leitað umsagnar sveitarfélagsins, vegna umsóknar lyfsöluleyfishafa Siglufjarðarapóteks um heimild til að reka lyfjaútibú í flokki 3 í afgreiðslu Heilsugæslunnar í Ólafsfirði.

Bæjarráð fagnar erindinu og veitir jákvæða umsögn.

6.Almenningssamgöngur á vegum Eyþings

Málsnúmer 1112060Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað nefndar á vegum Eyþings um almenningssamgöngur dagsett 17.07.2013.
Einnig fylgigögn er tengjast málinu.
Það er megin niðurstaða nefndarinnar að forsendur fyrir verkefninu sem samið var um við Vegagerðina í desember 2012, séu ekki til staðar og endurmeta beri aðkomu Eyþings að því.

7.Þyrluskíðun í landi Fjallabyggðar

Málsnúmer 1211069Vakta málsnúmer

Tekið til afgreiðslu erindi Iceland Heliskiing sem frestað var á síðasta fundi bæjarráðs. Í tengslum við mögulega stofnun ferðaþjónustufyrirtækis með aðsetur í Fjallabyggð fyrir þyrluskíðamennsku lá fyrir ósk fyrirtækisins um samning um einkaafnotarétt á jörðum og landssvæði í eigu sveitarfélagsins, á tímabilinu 1. mars til 20. júní ár hvert.


Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við áætlanir og hugmyndir umsækjanda um þyrluskíðun í Fjallabyggð, og býður fyrirtækið hjartanlega velkomið í sveitarfélagið, en telur ekki rétt að ganga til samninga um einkaleyfi að svo stöddu.

8.Rekstraryfirlit júlí 2013

Málsnúmer 1308057Vakta málsnúmer

Rekstraryfirlit fyrstu sjö mánuðina lagt fram til kynningar.

Rekstrarniðurstaða er 34 milljónum betri en tímabilsáætlun gerir ráð fyrir. Tekjur eru 7 milljónum hærri, gjöld 23 millj. lægri og fjárm.liðir 4 millj. lægri.

9.Ráðstefna um jarðskjálfta á Norðurlandi

Málsnúmer 1302020Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt frá ráðstefnunni um jarðskjálftahættu á Norðurlandi sem haldin var á Húsavík 6.- 8. júní s.l.

10.Evrópsk lýðræðisvika

Málsnúmer 1308044Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá Sambandi ísl. sveitarfélaga um evrópsku lýðræðisvikuna sem venja er að skipuleggja í kringum miðjan október.

11.Fundagerðir stjórnar Eyþings 2013

Málsnúmer 1301026Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 244. fundar stjórnar Eyþings frá 26. ágúst 2013.

Þar kom m.a. fram að fyrirhugaður er fundur með innanríkisráðherra 11. september 2013 um almenningssamgöngur á vegum Eyþings.

Bæjarráð samþykkir að færa til fundartíma bæjarstjórnar til 12. september, þar sem bæjarstjóri mun sækja fund ráðherra.

Fundi slitið - kl. 19:00.