Umsagnar leitað vegna umsóknar um lyfjaútibú

Málsnúmer 1308053

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 310. fundur - 03.09.2013

Í erindi Lyfjastofnunar dagettu 29. ágúst 2013, er leitað umsagnar sveitarfélagsins, vegna umsóknar lyfsöluleyfishafa Siglufjarðarapóteks um heimild til að reka lyfjaútibú í flokki 3 í afgreiðslu Heilsugæslunnar í Ólafsfirði.

Bæjarráð fagnar erindinu og veitir jákvæða umsögn.