Námskeið - frístund

Málsnúmer 2609021

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 932. fundur - 10.09.2026

Fyrir liggur svar vegna fyrirkomulags Frístundar haustið 2026 frá sviðsstjóra velferðarsviðs og deildarstjóra fræðslu- og frístundanefndar.
Vísað til nefndar
Bæjarráð þakkar sviðstjóra velferðarsviðs og deildarstjóra fræðslu- og frístundarmála fyrir góða yfirferð um fyrirkomulag Frístundar. Ljóst er að mikill metnaður er lagður í frístund og lengda viðveru. Starfið fer vel af stað og góð þátttaka. Erindinu vísað til umfjöllunar í fræðslu- og frístundanefnd.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 164. fundur - 23.09.2026

Þátttaka í Frístund og lengdri viðveru
Lagt fram til kynningar
Fræðslu- og frístundanefnd fagnar góðri þátttöku barna í frístund og lengdri viðveru og þeirri auknu fjölbreytni sem hefur verið byggð upp í starfinu til að mæta betur ólíkum þörfum barna. Nefndin telur mikilvægt að halda áfram á sömu braut og fagnar jafnframt því hversu vel hefur tekist að manna starfið.