Erindi til nýkjörinna sveitarstjórnarfulltrúa

Málsnúmer 2609014

Vakta málsnúmer

Öldungaráð Fjallabyggðar - 11. fundur - 08.09.2026

Hvatning LEB til nýkjörinna sveitarstjórnarfulltrúa.
Lagt fram til kynningar
Öldungaráði barst erindi Landssambands eldri borgara um skipan öldungaráða og mikilvægi virks samráðs við eldra fólk.

Öldungaráð Fjallabyggðar tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í erindinu. Ráðið hefur á undanförnu ári lagt áherslu á virkt starf, reglulega umræðu um málefni eldra fólks og að koma ábendingum og tillögum á framfæri við sveitarfélagið.

Öldungaráð telur mikilvægt að áfram verði byggt á þeirri vinnu og að ráðið fái tækifæri til að koma að stefnumótun og ákvörðunum sveitarfélagsins sem varða eldra fólk, þjónustu, búsetu, aðgengi og lífsgæði þess.

Ráðið leggur jafnframt áherslu á gott upplýsingaflæði og skýrar leiðir til samráðs milli öldungaráðs, nefnda og bæjarstjórnar þannig að þekking og reynsla eldra fólks nýtist við ákvarðanatöku og þróun þjónustu í Fjallabyggð.

Formaður hvatti forystu félaganna til að huga að kynjaskiptingu í ráðinu en aðalmenn eru allt karlar.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 932. fundur - 10.09.2026

Fyrir liggur erindi frá Landssambandi eldri borgara til nýkjörinna sveitarstjórna vegna skipan í öldungaráð og virks samráðs við eldra fólk.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar