Bæjarráð Fjallabyggðar

923. fundur 25. júní 2026 kl. 08:15 - 09:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
  • Pálmi Blængsson varafulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Ráðning skólastjóra 2026

Málsnúmer 2606060Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal sviðsstjóra Velferðarsviðs um ráðningu skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar. Starfið var auglýst laust til umsóknar og bárust þrjár umsóknir um starfið. Við yfirferð kom í ljós að einn umsækjandi uppfyllti ekki hæfniskröfur, annar umsækjandi uppfyllti ekki þær faglegu og lögbundnu kröfur sem gerðar eru til starfsins og þriðji umsækjandinn dró umsókn sína til baka.
Sviðsstjóri leitaði til Guðrúnar Unnsteinsdóttur, sem gengt hefur starfi deildarstjóra, um að hún tæki að sér starf skólastjóra og með því tryggja stöðuleika og faglega forystu við upphaf næsta skólaárs. Sviðsstjóri mælir með ráðningu Guðrúnar Unnsteinsdóttur í starf skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar og óskar eftir staðfestingu bæjarráðs og heimild til þess að ráða hana í starfið frá og með 1. ágúst n.k.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra um ráðningu nýs skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar og lýsir yfir ánægju sinni með niðurstöðuna og óskar Guðrúnu Unnsteinsdóttur velfarnaðar í störfum sínum.

2.Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal

Málsnúmer 2510036Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal bæjarstjóra vegna reksturs skíðasvæðisins í Skarðsdal.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar bæjarstjóra fyrir framlagt minnisblað og felur honum að auglýsa eftir rekstraraðila Skíðasvæðisins í Skarðsdal.

3.Trúnaðarmál - starfsmannamál

Málsnúmer 2606063Vakta málsnúmer

Með afgreiðslu vísast til trúnaðarbókar

4.Fiskhjallar í Ólafsfirði

Málsnúmer 2606064Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga um varðveislu söguminja við fiskhjallana er standa í Kleifarhorni og við sjósandinn í Ólafsfirði. Tillagan gerir ráð fyrir því að farið verði í hreinsunarstarf á svæðinu og í framhaldinu verði hugað að því að sækja um styrk í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða til byggingar á nýjum hjöllum ásamt tilfallandi fræðsluefni og fleiru.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að fara í hreinsun á svæðinu með það í huga að halda eftir parti af hjalli sem minjum og í framhaldi verði gerð áætlun um byggingu eins fiskihjalls. Skipulags- og framkvæmdasviði falið að leggja fyrir bæjarráð á næsta fundi áætlun um kostnað og framkvæmd verksins.
Einnig verði sótt um styrk til Framkvæmdasjóðs Ferðamannastaða vegna uppbyggingarinnar.

5.Ábending vegna óþarfa rasks á fuglalífi í Ólafsfirði

Málsnúmer 2606043Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Náttúruverndarstofnun sem borist hefur ábending um hugsanlegt brot á lögum um friðun fugla vegna umferð torfæruhjóla í Ólafsfirði við Ólafsfjarðará. Fram kemur að samkvæmt ábendingu fari akstur torfæruhjóla fram utan brauta sem valdi miklu raski í kríuvarpi.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar fyrir ábendinguna. Bæjarstjóri hefur nú þegar brugðist við erindinu og sent ábendinguna til viðeigandi aðila.

6.Endurskoðun hættumats fyrir Fjallabyggð 2026

Málsnúmer 2604024Vakta málsnúmer

Fyrir liggur verkefnisskilgreining og áætlun Verkís á endurskoðun frumathugunar undan Strengsgiljum á Siglufirði. Miðað er við að endurskoðun fari fram árið 2027 og í framhaldi hugsanlegar nauðsynlegar framkvæmdir.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að óska eftir því við Ofanflóðanefnd að unnið verði eftir fyrirliggjandi verkefnisskilgreiningu og áætlun Verkís á endurskoðun frumathugunar.
Veðurstofa Íslands stefnir á að halda kynningarfund fyrir íbúa í Fjallabyggð miðvikudaginn 5. ágúst n.k., vegna endurskoðunar á frumathugun vegna hættumats.

7.Vatnsveita Fjallabyggðar, tillögur til úrbóta 2026

Málsnúmer 2602050Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri upplýsti um að aðilar á vegum Ísor hafi heimsótt Brimnesdal þann 18.júní s.l. en markmið heimsóknarinnar var að meta hvort líklegt væri að finna nægjanlegt magn vatns á hentugu dýpi til þess að mæta vatnsþörf í Ólafsfirði. Sérfræðingar á vegum Ísor eru að yfirfara þau gögn sem safnað var og munu leggja fram samantekt þegar þeirri yfirferð er lokið.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð lýsir yfir ánægu sinni með heimsókn Ísor og vonar að niðurstaðan verði jákvæð.

8.Breyting á heilbrigðiseftirliti 2026

Málsnúmer 2602035Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra um stöðu mála varðandi fyrirhugaðra breytinga á skipulagi eftirlitsins. Áætlað er að funda á vettvangi SSNE n.k. þriðjudag vegna málsins.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð þakkar Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra fyrir minnisblaðið um fyrirhugaðar breytingar á skipulagi eftirlitsins sem reiknað er með að taki gildi 1. janúar 2027. Fram að þeim tíma verður embættið starfandi út árið 2026 í nánast óbreyttri mynd. Ljóst er að sveitarfélögin á svæðinu þurfa sem fyrst að undirbúa fjárhagslegar, stjórnsýslulegar og þjónustutengdar afleiðingar breytinganna.

9.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl af stöðufundum 69 og 70 með framkvæmdasviði
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 09:15.