Ráðning skólastjóra 2026

Málsnúmer 2606060

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 923. fundur - 25.06.2026

Fyrir liggur vinnuskjal sviðsstjóra Velferðarsviðs um ráðningu skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar. Starfið var auglýst laust til umsóknar og bárust þrjár umsóknir um starfið. Við yfirferð kom í ljós að einn umsækjandi uppfyllti ekki hæfniskröfur, annar umsækjandi uppfyllti ekki þær faglegu og lögbundnu kröfur sem gerðar eru til starfsins og þriðji umsækjandinn dró umsókn sína til baka.
Sviðsstjóri leitaði til Guðrúnar Unnsteinsdóttur, sem gengt hefur starfi deildarstjóra, um að hún tæki að sér starf skólastjóra og með því tryggja stöðuleika og faglega forystu við upphaf næsta skólaárs. Sviðsstjóri mælir með ráðningu Guðrúnar Unnsteinsdóttur í starf skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar og óskar eftir staðfestingu bæjarráðs og heimild til þess að ráða hana í starfið frá og með 1. ágúst n.k.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra um ráðningu nýs skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar og lýsir yfir ánægju sinni með niðurstöðuna og óskar Guðrúnu Unnsteinsdóttur velfarnaðar í störfum sínum.