Fiskhjallar í Ólafsfirði

Málsnúmer 2606064

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 923. fundur - 25.06.2026

Fyrir liggur tillaga um varðveislu söguminja við fiskhjallana er standa í Kleifarhorni og við sjósandinn í Ólafsfirði. Tillagan gerir ráð fyrir því að farið verði í hreinsunarstarf á svæðinu og í framhaldinu verði hugað að því að sækja um styrk í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða til byggingar á nýjum hjöllum ásamt tilfallandi fræðsluefni og fleiru.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að fara í hreinsun á svæðinu með það í huga að halda eftir parti af hjalli sem minjum og í framhaldi verði gerð áætlun um byggingu eins fiskihjalls. Skipulags- og framkvæmdasviði falið að leggja fyrir bæjarráð á næsta fundi áætlun um kostnað og framkvæmd verksins.
Einnig verði sótt um styrk til Framkvæmdasjóðs Ferðamannastaða vegna uppbyggingarinnar.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 924. fundur - 02.07.2026

Fyrir liggur vinnuskjal frá sviðsstjóra um fyrirhugaða tiltekt á svæðinu við hjallana í Ólafsfirði en gert er ráð fyrir að taka þurfi til á svæðinu með vinnuvélum.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs fyrir minnisblaðið. Verkið er viðamikið og krefst aðkomu vinnuvéla. Rætt um að nýta hluta af efninu í brennu sem verður á Síldarævintýrinu og á áramótabrennu í Ólafsfirði. Áætlaður kostnaður er 3-5 milljónir og taki um 10 daga. Bæjarstjóra og sviðsstjóra falið að setja verkið í gang með verktaka enda rúmist kostnaður innan fjárhagsáætlunar ársins.