Breyting á heilbrigðiseftirliti 2026

Málsnúmer 2602035

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 909. fundur - 23.02.2026

Fyrir liggja ýmsar upplýsingar um fyrirhugaðar breytingar á starfsemi heilbrigðiseftirlita.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Bæjarráð Fjallabyggðar - 917. fundur - 27.04.2026

Fyrir liggur umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra til Umhverfis - og samgöngunefndar Alþingis vegna frumvarps til laga um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. - mál nr. 582. þskj. 984 á 157. löggjafarþingi.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Bæjarráð Fjallabyggðar - 923. fundur - 25.06.2026

Fyrir liggur vinnuskjal frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra um stöðu mála varðandi fyrirhugaðra breytinga á skipulagi eftirlitsins. Áætlað er að funda á vettvangi SSNE n.k. þriðjudag vegna málsins.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð þakkar Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra fyrir minnisblaðið um fyrirhugaðar breytingar á skipulagi eftirlitsins sem reiknað er með að taki gildi 1. janúar 2027. Fram að þeim tíma verður embættið starfandi út árið 2026 í nánast óbreyttri mynd. Ljóst er að sveitarfélögin á svæðinu þurfa sem fyrst að undirbúa fjárhagslegar, stjórnsýslulegar og þjónustutengdar afleiðingar breytinganna.