Vatnsveita Fjallabyggðar, tillögur til úrbóta 2026

Málsnúmer 2602050

Vakta málsnúmer

Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar - 8. fundur - 05.03.2026

Fyrir liggur bréf frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra með tillögum að lagfæringum og endurnýjun á vatnsveitu Fjallabyggðar.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Nefndin ítrekar fyrri bókun og óskar eftir upplýsingum frá framkvæmdasviði um mögulega kosti um hagkvæmar lausnir.

Framkvæmda-, hafna og veitunefnd Fjallabyggðar - 9. fundur - 15.04.2026

Fyrir liggur vinnuskjal frá sviðsstjóra framkvæmdasviðs á tillögum til úrbóta á vatnsveitu í Ólafsfirði og vatnsöflun. Í samræmi við innviðagreiningu Eflu frá árinu 2023 eru þrír möguleikar á vatnsbólum skoðaðir auk þess sem skoðaður er möguleiki á borun eftir köldu vatni. Sviðsstjóri fór yfir málið og leggur til að skoðaður verði frekar sá möguleiki að bora eftir köldu vatni í nágrenni Múlalindar.
Samþykkt
Nefndin þakkar sviðsstjóra fyrir samantektina og leggur til við bæjarráð Fjallabyggðar að farið verði að tillögu sviðsstjóra um að boraðar verði tilraunaholur eftir köldu vatni á vatnasvæði í Brimnesdal þegar snjóa leysir og færi gefst. Niðurstöður úr slíkum tilraunaholum gæfu þá nauðsynlegar upplýsingar varðandi framhaldið um úrbætur á vatnsmálum í Ólafsfirði.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 916. fundur - 16.04.2026

Fyrir liggur vinnuskjal frá sviðsstjóra skipulags - og framkvæmdasviðs sem lagt var fyrir fund framkvæmda-, hafna- og veitunefndar miðvikudaginn 14.apríl.
Samþykkt
Framkvæmda-, hafna- og veitunefnd leggur til við bæjarráð að farið verði að tillögum sviðsstjóra um að boraðar verði tilraunaholur eftir köldu vatni á vatnasvæði Brimnesdals. Bæjarráð tekur undir tillögu nefndarinnar og felur skipulags- og framkvæmdasviði að vinna málið áfram.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 923. fundur - 25.06.2026

Bæjarstjóri upplýsti um að aðilar á vegum Ísor hafi heimsótt Brimnesdal þann 18.júní s.l. en markmið heimsóknarinnar var að meta hvort líklegt væri að finna nægjanlegt magn vatns á hentugu dýpi til þess að mæta vatnsþörf í Ólafsfirði. Sérfræðingar á vegum Ísor eru að yfirfara þau gögn sem safnað var og munu leggja fram samantekt þegar þeirri yfirferð er lokið.
Lagt fram til kynningar
Bæjarráð lýsir yfir ánægu sinni með heimsókn Ísor og vonar að niðurstaðan verði jákvæð.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 925. fundur - 09.07.2026

Fyrir liggur vinnuskjal frá Ísor þar sem fram koma tillögur að fimm holustaðsetningum til borunar eftir köldu vatni í og við Brimnesdal.
Samþykkt
Bæjarráð þakkar Ísor fyrir framlagt minnisblað og felur Sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að óska eftir verðtilboðum í tilraunaboranir á allt að fimm holum eins og kemur fram í minnisblaðinu.