Endurskoðun hættumats fyrir Fjallabyggð 2026

Málsnúmer 2604024

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 922. fundur - 18.06.2026

Í kjölfar kynningar á endurskoðun hættumats neðan varnargarða á Siglufirði og í Ólafsfirði óskaði Fjallabyggð eftir endurskoðun á frumathugun vegna hættusvæðis C. Fyrir liggur að Veðurstofa haldi íbúakynningu vegna endurskoðunar hættumats.
Samþykkt
Bæjarráð hvetur Veðurstofuna að kynna sem fyrst fyrir íbúum í Fjallabyggð endurskoðun á hættumati.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 923. fundur - 25.06.2026

Fyrir liggur verkefnisskilgreining og áætlun Verkís á endurskoðun frumathugunar undan Strengsgiljum á Siglufirði. Miðað er við að endurskoðun fari fram árið 2027 og í framhaldi hugsanlegar nauðsynlegar framkvæmdir.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir að óska eftir því við Ofanflóðanefnd að unnið verði eftir fyrirliggjandi verkefnisskilgreiningu og áætlun Verkís á endurskoðun frumathugunar.
Veðurstofa Íslands stefnir á að halda kynningarfund fyrir íbúa í Fjallabyggð miðvikudaginn 5. ágúst n.k., vegna endurskoðunar á frumathugun vegna hættumats.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 927. fundur - 30.07.2026

Fyrir liggur erindi frá Finni I Sölvasyni, lóðarhafa og framkvæmdaaðila við lóðina að Suðurgötu 87, og Sigurði Hlöðverssyni, byggingarstjóra fyrirhugaðrar byggingar einbýlishúss á lóðinni. Þar sem ekki liggur fyrir staðfest endurskoðun hættumats fyrir Fjallabyggð er óskað eftir undanþágu frá breytingum á hönnun hússins og fordæmi eru fyrir við svipaðar aðstæður og gera megi ráð fyrir því að fullnaðarvörnum vegna snjóflóða verði lokið innan fárra ára. Í meðfylgjandi teikningum hefur byggingin verið styrkt frá upphaflegri hönnun.

Kynning á endurskoðuðu hættumati verður 26.ágúst n.k.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir beiðni um undanþágu á hönnun hússins þar sem ekki liggur fyrir staðfest hættumat fyrir svæðið en lóð var úthlutað og byggingarleyfi var veitt miðað við gildandi hættumat. Bæjarstjóra falið að útbúa yfirlýsingu í samráði við lögfræðing bæjarins.