Bæjarráð Fjallabyggðar

922. fundur 18. júní 2026 kl. 08:15 - 10:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helgi Jóhannsson formaður
  • Pálmi Blængsson varafulltrúi
  • Tómas Atli Einarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri

1.Ráðning bæjarstjóra

Málsnúmer 2605057Vakta málsnúmer

Fyrir liggur framlenging á viðaukasamningi við Þóri Hákonarson sem gildir frá 1. júní 2026 og þar til nýr bæjarstjóri hefur verið ráðinn og tekinn til starfa.
Samþykkt
Fyrirliggjandi framlenging á viðaukasamningi samþykkt.

2.Viðauki við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2605003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að viðauka á fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 þar sem heildaráhrif fjárhagslega eru 15 milljónir í aukna fjárfestingu til þess að klára malbikun og fleira á tjaldsvæðið í Ólafsfirði Af rekstrarreikningi er viðhaldskostnaður af íþróttahúsi Siglufirði færður yfir á viðhald gatnakerfis að upphæð 4,5 milljónir króna.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun. Mikilvægt er að ná að klára framkvæmdir við fyrri áfanga tjaldsvæðisins í Ólafsfirði á þessu ári þannig að það nýtist að fullu á næsta ári. Einnig er verið að bæta við fjármunum vegna löngu tímabæra endurbóta á veginum að sumarhúsabyggðinni á Saurbæjarási.

3.Endurskoðun hættumats fyrir Fjallabyggð 2026

Málsnúmer 2604024Vakta málsnúmer

Í kjölfar kynningar á endurskoðun hættumats neðan varnargarða á Siglufirði og í Ólafsfirði óskaði Fjallabyggð eftir endurskoðun á frumathugun vegna hættusvæðis C. Fyrir liggur að Veðurstofa haldi íbúakynningu vegna endurskoðunar hættumats.
Samþykkt
Bæjarráð hvetur Veðurstofuna að kynna sem fyrst fyrir íbúum í Fjallabyggð endurskoðun á hættumati.

4.Rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal

Málsnúmer 2510036Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal bæjarstjóra vegna reksturs skíðasvæðisins í Skarðsdal ásamt vinnuskjali um viðhald við skil á svæði 2026.
Afgreiðslu frestað
Bæjarráð leggur til að málinu verði frestað til næsta fundar bæjarráðs. Bæjarstjóra falið að afla frekari upplýsinga.

5.Reglur um matarvagna 2026

Málsnúmer 2605005Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að reglum fyrir matarvagna í Fjallabyggð á viðburðum og bæjarhátíðum.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og felur bæjarstjóra að auglýsa reglurnar.

6.Umsjón Neon og frístundamála 2026

Málsnúmer 2606032Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá sviðsstjóra velferðarsviðs þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til þess að auglýsa og ráða í fullt starf umsjónarmanns félagsmiðstöðvarinnar Neon og frístundamála, m.a. með sameiningu hlutastarfa.
Samþykkt
Erindi samþykkt

7.Flugvallarsvæðið á Siglufirði

Málsnúmer 2602059Vakta málsnúmer

Fyrir liggur nýtt kauptilboð Viking Heliskiing í fasteignir Fjallabyggðar á flugvallarsvæðinu á Siglufirði. Fyrra tilboð var með tilteknum fyrirvörum sem ekki koma fram í nýju tilboði.
Samþykkt
Á 272. fundi bæjarstjórnar þann 4. júní 2026 var samþykkt kauptilboð frá Viking Heliskiing ehf. í fasteignir Fjallabyggðar á flugvellinum á Siglufirði þ.e. tækjahús og þjónustumiðstöð. Fyrirvari var á kaupum um að ytra birði húsana sé í góðu lagi við afhendingu, þ.e. að þau haldi vatni og vindum, að engir lekar séu inni í húsinu og engin mygluvandamál. Komi í ljós leki eða mygla dragast viðgerðir á því af afsalsgreiðslu. Það ákvæði sætti Fjallabyggð sig ekki við og því varð ekki af kaupsamningi.
Nú liggur fyrir nýtt kauptilboð frá sömu aðilum sem hljóðar uppá kr. 12.000.000- og eru án ofangreindra fyrirvara. Bæjarráð samþykkir tilboðið fyrir sitt leiti og vísar því til afgreiðslu í bæjarstjórn.

8.Íþróttavika Evrópu 2026

Málsnúmer 2606030Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá ÍSÍ þar sem vakin er athygli á íþróttaviku Evrópu sem fram fer daga 23. - 30.september. ÍSÍ hvetur til þátttöku og hægt er að sækja um fjárstyrk fyrir framkvæmd viðburða í íþróttavikunni.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Vísað til sviðstjóra velferðarsviðs

9.Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2031

Málsnúmer 2606028Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem kynnt eru fyrstu drög að forsendum fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

10.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggja vinnuskjöl frá þremur stöðufundum með framkvæmdasviði.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

11.Aðalfundur MHR og önnur gögn 2026

Málsnúmer 2606029Vakta málsnúmer

Fyrir liggja gögn vegna aðalfundar Miðstöðvar héraðsskjalasafna um rafræna skjalavörslu (MHR)
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

12.Boð um þátttöku í samráði - Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum

Málsnúmer 2606036Vakta málsnúmer

Fyrir liggur boð um þátttöku í samráði við áforma um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum sem hefur það að markmiði að gera höfnum kleift að innheimta þjónustugjöld svo tekjur standi undir rekstri hafnarinnar, endurnýjun og framkvæmdum.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

13.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundargerðir síðustu funda Velferðarnefndar Fjallabyggðar og skipulags - og umhverfisnefndar Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:15.