Íþróttavika Evrópu 2026

Málsnúmer 2606030

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 922. fundur - 18.06.2026

Fyrir liggur erindi frá ÍSÍ þar sem vakin er athygli á íþróttaviku Evrópu sem fram fer daga 23. - 30.september. ÍSÍ hvetur til þátttöku og hægt er að sækja um fjárstyrk fyrir framkvæmd viðburða í íþróttavikunni.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Vísað til sviðstjóra velferðarsviðs

Stýrihópur Heilsueflandi samfélags - 36. fundur - 29.09.2026

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin ár hvert dagana 23.- 30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi.

Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive.
Lagt fram til kynningar
Nefndarmenn óska eftir að tekið verði saman hversu vel var mætt í kynningartímana frá þeim aðilum sem buðu uppá kynningar á ýmsum íþróttum og afþreyingu.