Bæjarráð Fjallabyggðar

908. fundur 12. febrúar 2026 kl. 08:15 - 10:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Guðjón M. Ólafsson formaður
  • Tómas Atli Einarsson varaformaður
  • Helgi Jóhannsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórir Hákonarson bæjarstjóri
Þorgeir Bjarnason sat fundinn fyrir H-lista við afgreiðslu á lið 1 í dagskránni.

1.Rekstur upplýsingamiðstöðvar Fjallabyggðar

Málsnúmer 2601040Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt bæjarstjóra á gögnum áhugasamra aðila um rekstur upplýsingamiðstöðvar í sumar eftir fundi með hverjum og einum aðila.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Evanger um rekstur upplýsingamiðstöðvar sumarið 2026 að gefnum tilteknum skilyrðum er varða þjónustu í báðum byggðakjörnum og þá verði horft til þess að samstarf verði við Pálshús um upplýsingagjöf og miðlun gagna á Ólafsfirði. Drög að samstarfssamningi verði lögð fyrir bæjarráð.

2.Barnaverndarþjónusta í Fjallabyggð -fósturheimili

Málsnúmer 2602014Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá félagsmálastjóra á stöðu fósturvistana og fósturheimila sem skjólstæðingar Fjallabyggðar eru að njóta. Óskað var eftir samantekt í ljósi þeirra mála sem hafa verið í umræðu um eftirlit með fósturheimilum á landsvísu.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar félagsmálastjóra greinargóðar upplýsingar þar sem m.a. kemur fram að enginn skjólstæðingur frá Fjallabyggð sé að nýta fósturvistun og að eftirlit með slíkri þjónustu sé í höndum Barnaverndarþjónustu Norðurlands skv. samningi sem og hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

3.Hornbrekka - samningur við SÍ

Málsnúmer 2204077Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri greindi frá framvindu mála varðandi yfirfærslu reksturs hjúkrunarheimilisins Hornbrekku til HSN.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar framkomnar upplýsingar en stefnt er að því að rekstur hjúkrunarheimilis færist til HSN þann 1.apríl n.k. en dagþjónusta verði áfram hjá Velferðarsviði Fjallabyggðar.

4.Samningur milli LHG og Fjallabyggðar um þjónustu hafnar.

Málsnúmer 2201012Vakta málsnúmer

Samningur Fjallabyggðar og Landhelgisgæslunnar varðandi þjónustu við varðskipið Freyju og fleira rennur út í haust. Bæjarstjóri óskar eftir heimild til þess að ganga til viðræðna um áframhaldandi samning er byggir á forsendum fyrri samnings.
Samþykkt
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við LHG um áframhaldandi þjónustu í Fjallabyggðarhöfn við varðskipið Freyju.

5.Innköllun hluta lóðarinnar Brimnes undir nýjan kirkjugarð

Málsnúmer 2405057Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sigurjóni Magnússyni þar sem lögð er fram tillaga að bótum vegna kostnaðar sem Sigurjón telur að hann hafi orðið fyrir vegna innköllunar lóðar fyrir nýjan kirkjugarð við Brimnes.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar Sigurjóni fyrir erindið og felur bæjarstjóra að leita álits lögmanns sveitarfélagsins m.t.t. krafna sem koma fram í erindi Sigurjóns.

6.Bikarmót á skíðum á Siglufirði 2026

Málsnúmer 2602020Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá Skíðafélagi Siglufjarðar Skíðaborg (SSS) þar sem óskað er eftir opnun á sundlauginni á Siglufirði laugardagskvöld frá 19:30 - 21:00 fyrir unglinga sem taka þátt í bikarmóti á skíðum og frían aðgang fyrir um 70 keppendur.
Samþykkt
Bæjarráð samþykkir erindið og styrkveitingu fyrir opnun sundlaugar á Siglufirði fyrir keppendur á bikarmóti á skíðum.

7.Stöðufundir skipulags- og framkvæmdasviðs 2026

Málsnúmer 2601018Vakta málsnúmer

Fyrir liggur vinnuskjal frá 53.stöðufundi með framkvæmdasviði.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

8.Ársreikningur Fjallabyggðar 2025

Málsnúmer 2601019Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri greindi frá stöðu varðandi skil til endurskoðenda vegna ársreiknings 2025 og er ferlið í samræmi við áætlun. Jafnframt var lögð fram staða á rekstri málaflokka og tekjum fyrir árið. Ljóst er að tekjur og gjöld ársins 2025 eru meiri heldur en gert var ráð fyrir og skýrist það m.a. vegna aukinna framlaga vegna lögbundinna verkefna Fjallabyggðar. Lífeyrisskuldbindingar er fram koma í rekstrarreikningi eru mun hærri heldur en gert var ráð fyrir og skýrist það m.a. vegna mikilla launahækkanna á síðasta ári.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram tilkynningar

9.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2026

Málsnúmer 2601001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð 330.fundar skipulags - og umhverfisnefndar Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 10:15.