Barnaverndarþjónusta í Fjallabyggð -fósturheimili

Málsnúmer 2602014

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 908. fundur - 12.02.2026

Fyrir liggur vinnuskjal frá félagsmálastjóra á stöðu fósturvistana og fósturheimila sem skjólstæðingar Fjallabyggðar eru að njóta. Óskað var eftir samantekt í ljósi þeirra mála sem hafa verið í umræðu um eftirlit með fósturheimilum á landsvísu.
Vísað til afgreiðslu starfsmanns
Bæjarráð þakkar félagsmálastjóra greinargóðar upplýsingar þar sem m.a. kemur fram að enginn skjólstæðingur frá Fjallabyggð sé að nýta fósturvistun og að eftirlit með slíkri þjónustu sé í höndum Barnaverndarþjónustu Norðurlands skv. samningi sem og hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Velferðarnefnd Fjallabyggðar - 6. fundur - 12.02.2026

Minnisblað vegna mikillar umræðu um fósturvistanir og fósturheimili í samfélaginu.
Lagt fram til kynningar
Deildarstjóri og sviðsstjóri fóru yfir stöðu mála í Fjallabyggð varðandi fósturúrræði. Engin börn eru í fósturúrræði í Fjallabyggð en nefndarmenn eru sammála um að ef til þess þarf að koma að nýta slíkt úrræði er mikilvægt að eftirlit sé í lagi.