Bæjarráð Fjallabyggðar

674. fundur 12. nóvember 2020 kl. 08:15 - 09:30 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir formaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
  • Elías Pétursson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Helga Helgadóttir formaður bæjarráðs

1.Fjárhagsáætlun 2021 - Tillaga að fjárhagsáætlun

Málsnúmer 2007004Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun fyrir árið 2021.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til umsagnar hjá nefndum og deildarstjórum.

Niðurstöður nefnda þurfa að liggja fyrir eigi síður en 20. nóvember nk..

2.Fjárhagsáætlun 2021, kostnaðarskipting launa TÁT

Málsnúmer 2010139Vakta málsnúmer

Lögð fram áætluð kostnaðarskipting launa á milli Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar vegna Tónlistarskólans á Tröllaskaga (TÁT) fyrir árið 2021.

Bæjarráð samþykkir að vísa áætluðum launakostnaði Fjallabyggðar til fjárhagsáætlunar 2021.

3.Launayfirlit tímabils - 2020

Málsnúmer 2002025Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit launa fyrir tímabilið janúar til október 2020.

4.Staðgreiðsla tímabils - 2020

Málsnúmer 2001113Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit staðgreiðslu fyrir tímabilið janúar til október 2020. Staðgreiðsla fyrir tímabilið nemur kr. 981.163.367.- eða 100,28% af tímabilsáætlun.

5.Úrbætur á fráveitulögnum á lóð Síldarminjasafnsins

Málsnúmer 1908052Vakta málsnúmer

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar, dags. 06.11.2020 þar sem fram kemur að drenlögn sem búið er að leggja frá Bátahúsinu í tjörnina við Róaldsbakka annar ekki því mikla vatnsmagni sem þar er. Nauðsynlegt er að leggja aðra lögn sem mun liggja ofar í bakkanum vestan við Salthúsið í tjörnina, áætlaður kostnaður er kr. 1.500.000. Óskað er eftir samþykki bæjarráðs vegna kostnaðarhluta sveitarfélagsins kr. 1.050.000.

Bæjarráð samþykkir að vísa kostnaði kr. 1.050.000 í viðauka nr. 30/2020 við fjárhagsáætlun 2020. Viðaukinn mun ekki hreyfa við handbæru fé heldur rúmast innan framkvæmdaráætlunar 2020.

6.Erindi frá Síldarminjasafni Íslands - Beiðni um endurnýjun rekstrarsamnings

Málsnúmer 2010040Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Anitu Elefsen. fh. Síldarminjasafns Íslands ses., dags. 07.10.2020 þar sem óskað er eftir viðræðum við kjörna fulltrúa Fjallabyggðar um endurnýjun og hækkun á rekstrarsamningi en núgildandi samningur rennur út í árslok.

Einnig lagt fram fylgiskjal um uppbyggingu, fjármögnun, starfsemi, rekstur og hlutverk safnsins

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2021.

7.Samkomulag um þjónustukaup jól og áramót 2020-2023

Málsnúmer 2010070Vakta málsnúmer

Lagt fram vinnuskjal markaðs- og menningarfulltrúa, dags. 27.10.2020 þar sem lagt er til við bæjarráð að styrkur til Björgunarsveitarinnar Tinds í Ólafsfirði, Björgunarsveitarinnar Stráka á Siglufirði og Kiwanisklúbbsins Skjaldar á Siglufirði vegna flugeldasýninga og brenna á gamlárskvöld og á þrettándanum verði hækkaður úr kr. 250.000 í kr. 300.000. Samningar hafa verið gerðir til þriggja ára og komið að endurnýjun.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2021.

8.Beiðni um endurnýjun á samningi

Málsnúmer 2010100Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Kristrúnar Halldórsdóttur fh. Skógræktarfélags Siglufjarðar, dags. 23.10.2020 þar sem óskað er eftir endurnýjun og hækkun á rekstrarsamningi en núgildandi samningur rennur út um áramótin. Einnig lagt fram vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar, dags. 4.11.2020.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2021.

9.Starfsemi NEON - Framtíðarhúsnæði

Málsnúmer 2005012Vakta málsnúmer

Lögð fram bókun 4. fundar Vinnuhóps um framtíðarhúsnæði fyrir félagsmiðstöðina NEON þar sem því er beint til bæjarstjórnar að nú þegar verði hafin leit að hentugu húsnæði undir NEON á Siglufirði. Einnig lagðar fram umsagnir og vinnuskjal deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála dags. 28.10.2020.

Bæjarráð samþykkir að vísa bókun vinnuhópsins til bæjarstjórnar Fjallabyggðar.

10.Stytting vinnuvikunnar hjá dagvinnufólki, erindi til sveitarstjórnar

Málsnúmer 2011008Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Bandalags háskólamanna, dags. 02.11.2020 varðandi styttingu vinnuvikunnar hjá dagvinnufólki.

11.Styrkir úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Málsnúmer 2010143Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Samtök sveitarfélag og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), dags. 30.10.2020 þar sem fram kemur að frestur til að sækja um styrk í Samstarfssjóð við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna vegna samstarfsverkefna fyrirtækja í þróunarlöndum rennur út 06.12.2020.

12.Strandverðir Íslands - kveðja frá Veraldarvinum

Málsnúmer 2011001Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Þórarins Tóta Ívarssonar fh. Veraldarvina, dags. 30.10.2020 er varðar verkefnið Strandverðir Íslands sem felst í hreinsun strandlengju Íslands næstu fimm árin. Sveitarfélögum er boðið að taka þátt og leggja til aðgang að sundlaug, söfnum og í einhverjum tilfellum tjaldstæðum og aðstoð við að kynna verkefnið fyrir heimamönnum.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og mun taka endanlega ákvörðun um þátttöku þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.

13.Yfirlýsing - Baráttuhópur smærri fyrirtækja, einyrkja og sjálfstætt starfandi aðila í ferðaþjónustu

Málsnúmer 2011009Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Jónu F. Svavarsdóttur fh. baráttuhóps smærri fyrirtækja, einyrkja og sjálfstætt starfandi aðila í ferðaþjónustu, dags. 03.11.2020 er varðar yfirlýsingu, kröfur og tillögur.

14.Auglýst eftir umsóknum í Loftslagssjóð

Málsnúmer 2010144Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Samtök sveitarfélag og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), dags. 30.10.2020 þar sem athygli er vakin á að umsóknarfrestur til að sækja um í Loftlagssjóð rennur út 10.12.2020.

15.Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Málsnúmer 2011013Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, dags. 26.10.2020 þar sem fram kemur að hinn árlegi minnisdagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 15. nóvember nk.

16.Fréttabréf SSNE

Málsnúmer 2005025Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar 8. tbl. fréttabréfs Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), október 2020.

17.Frá nefndasviði Alþingis - mál til umsagnar

Málsnúmer 2005035Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 05.11.2020 er varðar umsögn um tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar, 39. mál.

18.Ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga

Málsnúmer 2003049Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, dags. 05.11.2020 þar sem fram kemur að ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélaga hefur verið framlengd til 10. mars 2021.

19.Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

Málsnúmer 2011002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem haldinn var 30. október sl.

20.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 2005041Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 890. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. október sl.

21.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2020

Málsnúmer 2001002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 4. fundar Vinnuhóps um framtíðarhúsnæði fyrir félagsmiðstöðina NEON frá 5. nóvember sl.

Fundi slitið - kl. 09:30.