Bæjarráð Fjallabyggðar

665. fundur 01. september 2020 kl. 08:15 - 09:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir formaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, H lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
  • Elías Pétursson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Samningur um greiðslur vegna skólaaksturs 2020-2021

Málsnúmer 2008027Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi um greiðslur til fósturforeldra vegna skólaaksturs veturinn 2020-2021.

Bæjarráð samþykkir drögin og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

2.Leiguhúsnæði fyrir NEON félagsmiðstöð

Málsnúmer 1506047Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi um leigu húsnæðis að Lækjargötu 8, Siglufirði fyrir félagsmiðstöðina Neon.

Bæjarráð samþykkir drögin og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

3.Ósk um endurnýjun á samningi um helgun á landsvæði í Ólafsfirði

Málsnúmer 2008019Vakta málsnúmer

Undir þessum lið vék Jón Valgeir Baldursson.

Lagt fram erindi Ásgeirs Loga Ásgeirssonar f.h. Framfarafélags Ólafsfjarðar ehf., dags. 14.08.2020 þar sem óskað er eftir endurnýjun á samkomulagi við sveitarfélagið um helgun á landsvæði í Ólafsfirði skv. erindi félagsins frá 31.03.2018. Óskað er eftir samkomulagi til fimm ára, á meðan verið er að vinna að undirbúningi á mögulegri atvinnustarfsemi á svæðinu á vegum félagsins. Einnig óska fulltrúar félagsins eftir því að koma á fund bæjarráðs til þess að kynna þá vinnu sem nú fer fram á vegum félagsins.

Bæjarráð samþykkir að boða forsvarsmenn félagsins á næsta fund ráðsins og mun í framhaldi taka afstöðu til endurnýjunar á samkomulagi.


4.Minnkandi starfshlutfall - Atvinnuleysi

Málsnúmer 2004032Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit og áætlun Sambands íslenskra sveitarfélaga yfir minnkað starfshlutfall og atvinnuleysi fyrir allt landið frá mars til 15. ágúst 2020. Í Fjallabyggð var hlutfall skráðra í minnkuðu starfshlutfalli í júlí 15%. Áætlun fyrir ágúst gerir ráð fyrir sama hlutfalli þ.e. 15%. Hlutfall skráðra á atvinnuleysisskrá í Fjallabyggð í júlí var 5%, áætlun fyrir ágúst gerir ráð fyrir að hlutfall atvinnulausra verði 4%.

5.Vanefndir Fjallabyggðar varðandi fimm liða samkomulags við Rauðku ehf

Málsnúmer 2002008Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Birgis Tjörva Péturssonar og Guðmundar Kristjáns Jónssonar fh. Selvíkur ehf., dags. 19.08.2020 um árangurslausar viðræður á grundvelli fimm liða samkomulags Selvíkur ehf. og Fjallabyggðar.

Einnig lagt fram svarbréf bæjarstjórnar Fjallabyggðar, dags 28.07.2020 er varðar afstöðu Fjallabyggðar varðandi tillögu Rauðku ehf. (Selvíkur ehf.) , dags. 16.07.2020.

6.Styrkbeiðni - Fyrrum starfsmenn blaðsins Dags á Akureyri

Málsnúmer 2008035Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Jóhanns Karls Sigurðssonar og Braga V. Bergmanns fh. fyrrum starfsmanna blaðsins Dags á Akureyri, dags. 20.08.2020 þar sem óskað er eftir stuðningi vegna ritunar og útgáfu bókar um „Sögu Dags á Akureyri 1918-1996“. Áætlað er að bókin komi út haustið 2021.

Bæjarráð þakkar erindið en sér sér ekki fært að verða við beiðninni.

7.Umsókn um styrk - Þjóðlagasetur sr.Bjarna Þorsteinssonar

Málsnúmer 2008039Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Gunnsteins Ólafssonar fh. Félags um Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar, dags. 18.08.2020 ásamt reikningi. Þar sem þess er óskað að bæjarráð Fjallabyggðar greiði Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði, sem fara átti fram dagana 1.-5. júlí 2020, styrk að upphæð kr. 800.000 vegna launa framkvæmdastjóra og grafískrar hönnunar vefs og prentaðrar dagskrár sem fer í prentun á næsta ári.

Einnig lagt fram erindi formanns félagsins frá 25.05.2020 og bókun bæjarráðs við erindinu dags. 16.06.2020

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu og bendir á að þegar hefur verið greiddur styrkur til félagsins að upphæð kr. 414.000 skv. ákvörðun bæjarráðs frá 16.06.2020 vegna rekstrarerfiðleika á tímum Covid-19 til viðbótar við rekstrarstyrk.

8.Umsókn um afslátt af fasteignaskatti

Málsnúmer 2008041Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Kristjáns Ragnars Ásgeirssonar fh. Brimnes Hótel ehf., dags. 21.08.2020 þar sem óskað er eftir 70% afslætti af fasteignagjöldum félagsins 2020 vegna rekstrarerfiðleika á tímum Covid-19.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

9.Samningar um samstarf sveitarfélaga

Málsnúmer 1801083Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, dags. 24.08.2020 er varðar athugasemdir við samninga sveitarfélagsins sem varða samvinnu við önnur sveitarfélög ásamt leiðbeiningum vegna samvinnu sveitarfélaga.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna málið áfram.

10.Erindi frá Golfklúbbi Fjallabyggðar - Þakkarbréf

Málsnúmer 2008021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Rósu Jónsdóttur fh. Golfklúbbs Fjallabyggðar, dags. 24.08.2020 er varðar þakkir til sveitarfélagsins.

11.Skýrsla um starfsemi Ofanflóðánefndar um starfsemi 2009 - 2017

Málsnúmer 2008031Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla um starfsemi Ofanflóðanefndar 2009-2017. Skýrsluna er að finna á heimasíðu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

12.Úttekt á stöðu tæknilegra innviða sveitarfélaga

Málsnúmer 2008054Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar úttekt Sambands íslenskra sveitarfélaga á tæknilegum innviðum sveitarfélaga.

13.Stöðuskýrslur uppbyggingarteymis félags- og atvinnumála

Málsnúmer 2008055Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar stöðuskýrslur uppbyggingarteymis félags- og atvinnumála frá 3. júní sl., 16. júní sl., 3. júlí sl., og 27. ágúst sl.

14.Fundargerðir - Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) - 2020

Málsnúmer 2002043Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 11. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra frá 12. ágúst sl.

15.Fundargerðir nefnda og stjórna Fjallabyggðar - 2020

Málsnúmer 2001002Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir;
66. fundar Markaðs- og menningarnefndar Fjallabyggðar frá 19. ágúst sl.
88. fundar Fræðslu- og frístundanefndar Fjallabyggðar frá 17. ágúst sl.
257. fundar Skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar frá 26. ágúst sl.
114. fundar Hafnarstjórnar frá 31. ágúst sl.

Fundi slitið - kl. 09:15.