Vanefndir Fjallabyggðar

Málsnúmer 2002008

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 639. fundur - 11.02.2020

Lagt fram erindi Róberts Guðfinnssonar fh. Rauðku og skyldra aðila, dags. 03.02.2020. varðandi vanefndir Fjallabyggðar á fimm liða samkomulagi milli Fjallabyggðar og Rauðku ehf. Óskað er eftir því að Fjallabyggð skipi tvo fulltrúa til viðræðna við fulltrúa Rauðku og skyldar aðila samkvæmt B kafla samkomulagsins.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir stöðumati á framgangi framkvæmda í samkomulaginu er snúa að sveitarfélaginu frá deildarstjóra tæknideildar.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 641. fundur - 25.02.2020

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar dags. 12.02.2020.

Bæjarráð samþykkir að vísa skipan tveggja fulltrúa, bæjarstjóra og lögmanns Fjallabyggðar til viðræðna við fulltrúa Rauðku og skyldra aðila til bæjarstjórnar Fjallabyggðar.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 190. fundur - 30.07.2020

Á 639. fundi bæjarráðs þann 11. febrúar sl. var tekið fyrir og afgreitt erindi Róberts Guðfinnssonar, f.h. Rauðku ehf., þar sem óskað var eftir því við Fjallabyggð að sveitarfélagið skipaði tvo fulltrúa í sérstakan viðræðuhóp í samræmi við efni B-hluta svokallaðs „Fimm liða samkomulags Fjallabyggðar og Rauðku ehf. frá 2012“.
Á 182. fundi bæjarstjórnar 11. mars voru bæjarstjóri og Ásgeir Örn Blöndal lögmaður, skipaðir í viðræðuhópinn, f.h. Fjallabyggðar.
Viðræðuhópurinn kom fyrst saman þann 30. mars sl. Hittist hópurinn alls fjórum sinnum á fundum. Auk umræddra fjögurra funda fundaði viðræðuhópurinn einnig þann 16. júlí sl. með sérstökum oddamanni sem skipaður hafði verið að ósk Rauðku ehf., í samræmi við ákvæði samkomulagsins, til að fara nánar yfir samkomulagið og leita lausna þar sem mögulegur ágreiningur væri til staðar.
Á umræddum fundi viðræðuhópsins með oddamanni lögðu fulltrúar Rauðku ehf., (Selvíkur ehf.) fram tillögu sem felur í sér að Fjallabyggð undirgangist skuldbindandi samkomulag, þ.e. sem væri þá viðbót eða til frekari fyllingar á efni samkomulagsins frá 2012, þess efnis að lokið verði við framkvæmdir í miðbæ Siglufjarðar og á Leirutanga á yfirstandandi kjörtímabili.
Bæjarstjórn telur sér ekki fært að samþykkja tillögu frá Rauðku ehf., að skuldbindandi samkomulagi sem lagt var fram á fundi viðræðuhóps með oddamanni dags. 16. júlí 2020. Sveitarfélagið væntir þess að geta átt í góðum samskiptum við Rauðku til lengri framtíðar um framgang verkefna sem snúa að þróun sveitarfélagsins í samræmi við ákvæði samkomulagsins frá 2012.
Lögð fram drög að svari Fjallabyggðar dags. 31. júlí 2020 við framkominni tillögu fulltrúa Rauðku ehf. um gerð skuldbindandi samkomulags, ásamt öðrum skjölum málsins s.s. bréfum, minnisblöðum og fundargerð fundar með oddamanni.

Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum framlögð drög að svarbréfi til Rauðku ehf., vegna tillögu félagsins um gerð sérstaks samkomulags og felur bæjarstjóra að senda bréfið á fulltrúa Rauðku ehf.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 665. fundur - 01.09.2020

Lagt fram til kynningar erindi Birgis Tjörva Péturssonar og Guðmundar Kristjáns Jónssonar fh. Selvíkur ehf., dags. 19.08.2020 um árangurslausar viðræður á grundvelli fimm liða samkomulags Selvíkur ehf. og Fjallabyggðar.

Einnig lagt fram svarbréf bæjarstjórnar Fjallabyggðar, dags 28.07.2020 er varðar afstöðu Fjallabyggðar varðandi tillögu Rauðku ehf. (Selvíkur ehf.) , dags. 16.07.2020.