Styrkbeiðni - Fyrrum starfsmenn blaðsins Dags á Akureyri

Málsnúmer 2008035

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 665. fundur - 01.09.2020

Lagt fram erindi Jóhanns Karls Sigurðssonar og Braga V. Bergmanns fh. fyrrum starfsmanna blaðsins Dags á Akureyri, dags. 20.08.2020 þar sem óskað er eftir stuðningi vegna ritunar og útgáfu bókar um „Sögu Dags á Akureyri 1918-1996“. Áætlað er að bókin komi út haustið 2021.

Bæjarráð þakkar erindið en sér sér ekki fært að verða við beiðninni.