Bæjarráð Fjallabyggðar

170. fundur 20. maí 2010 kl. 12:15 - 14:15 sem fjarfundur í ráðhúsinu á Siglufirði og á bæjarskrifstofunum í Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Bæjarráð varaformaður
  • Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir aðalmaður
  • Þorsteinn Ásgeirsson varamaður
  • Þórir Kristinn Þórisson bæjarstjóri
  • Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri

1.Málefni fatlaðra í Fjallabyggð

Málsnúmer 1005083Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mætti félagsmálastjóri og upplýsti um stöðu mála varðandi beiðni til félags- og tryggingamálaráðuneytis varðandi það að Ólafsfjörður verði hluti af þjónustusvæði byggðasamlags um málefni fatlaðra á N.l. vestra. Félagsmálastjóri, verkefnisstjóri SSNV og bæjarstjóri áttu fund í ráðuneytinu s.l. mánudag og fæst væntanlega niðurstaða í málið á næstu dögum.

2.Starfsmannahald félagsþjónustunnar

Málsnúmer 1003153Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mætti félagsmálastjóri og fór yfir starfsmannahald deildarinnar.
Tillaga félagsmálastjóra til bæjarráðs er sú að í stað félagsráðgjafa verði auglýst eftir sálfræðingi, sem hafi það starfssvið í meginatriðum að sinna greiningu, ráðgjöf og eftirfylgd til einstaklinga, fjölskyldna og fagfólks.

Bæjarráð samþykkir tillögu félagsmálastjóra.

3.Aðalfundur Landskerfa bókasafna hf. 26. maí 2010

Málsnúmer 1005050Vakta málsnúmer

Aðalfundur Landskerfa bókasafna er boðaður 26. maí 2010.
Með fundarboði fylgja samþykktir félagsins og ársreikningur.
Bæjarráð samþykkir að senda ekki fulltrúa þetta árið.

4.Ráðning verkstjóra í þjónustumiðstöð

Málsnúmer 1004045Vakta málsnúmer

Sex umsóknir bárust um stöðu verkstjóra í þjónustumiðstöð Fjallabyggðar.
Þeir eru í stafrófsröð :
Gísli Kristinsson
Guðni M. Sölvason
Gunnlaugur Ingi Haraldsson
Kristinn S. Gylfason
Rúnar Theodórsson og
Sölvi Lárusson.

Kröfur til umsækjenda voru eftirfarandi:
Leitað er að einstaklingi sem hefur til að bera færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði í starfi og góða skipulagshæfileika.
Reynsla af sambærilegu starfi, verkefnum, vinnuvélum og verklegum framkvæmdum er nauðsynleg.
Reynsla af gerð fjárhags-, kostnaðar- og verkáætlana og vinnu eftir teikningum er æskileg.
Góð tölvukunnátta og reynsla af skipulegri verkefnastýringu er æskileg.
Aukin vinnuvélaréttindi og iðnmenntun sem nýtist í starfi eru kostur.

Fyrir bæjarráði liggur greinargerð ráðningafyrirtækis eftir viðtöl við umsækjendur og minnisblað frá bæjarstjóra, þróunarstjóra og skipulags- og byggingarfulltrúa.

Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að ráða Gísla Kristinsson í starf verkstjóra.
Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir sat hjá þar sem hún getur ekki fellt sig við forsendur auglýsingar.

5.Upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn

Málsnúmer 1003009Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði er samningur við Rauðku ehf. um rekstur og umsjón upplýsingaþjónustu á Siglufirði fyrir Fjallabyggð og nágrenni sumarið 2010. Samningsupphæð er kr. 200 þúsund.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning.
Jafnframt verði markaðs- og kynningarfulltrúa falið að koma upp upplýsingaþjónustu í Ólafsfirði.

6.Rekstur tjaldstæðis 2010

Málsnúmer 1003010Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði er samningur við Rauðku ehf. um rekstur og umsjón tjaldstæða á Siglufirði, sumarið 2010.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning.

7.Fjallskilasamþykkt fyrir sveitarfélög við Eyjafjörð - Drög

Málsnúmer 1005065Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði eru drög að fjallskilasamþykkt fyrir sveitarfélög við Eyjafjörð.

Bæjarráð samþykkir að vísa drögum til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd.

8.Beiðni um styrk til framboða vegna sveitarstjórnarkosninga 2010

Málsnúmer 1005070Vakta málsnúmer

Í erindi Alberts Gunnlaugssonar fyrir hönd nokkurra fyrirtækja í Fjallabyggð er skorað á sveitarfélagið að styrkja hvert framboð til sveitarstjórnarkosninga um kr. 500 þúsund.
Á þessu ári hefur verið úthlutað kr. 360 þúsund samtals til framboða sem höfðu kjörfylgi við síðustu sveitarstjórnarkosningar, og samþykkir bæjarráð aukalega kr. 50 þúsund til hvers framboðs.


9.Umsókn um afslátt af fasteignaskatti 2010

Málsnúmer 1005087Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur erindi um sérstaka lækkun fasteignagjalda vegna Sigurveigar Stefánsdóttur, sbr 6. grein afsláttarreglna Fjallabyggðar um fasteignaskatt.
Bæjarráð staðfestir tillögu um að veita afslátt af fasteignaskatti, upphæð er taki mið af 6. flokki 5. greinar afsláttarreglna.
Bæjarráð samþykkir jafnframt að fela skrifstofu- og fjármálastjóra að afgreiða sambærilegar umsóknir hér eftir.

10.Umsóknir frá félögum og félagasamtökum um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Málsnúmer 0912073Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur samantekt umsókna félaga og félagasamtaka um styrk til greiðslu fasteignaskatts 2010 að upphæð rúmlega 1,5 milljón.

Bæjarráð samþykkir styrkveitingu til þeirra er uppfylla umsóknarskilyrði.

11.Búnaðarkaup - endurnýjun fjárheimildar

Málsnúmer 1005078Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur beiðni skrifstofu- og fjármálastjóra um endurnýjun fjárheimildar að upphæð kr. 780 þúsund í fjárhagsáætlun 2010 fyrir skrifstofubúnað.

Bæjarráð samþykkir heimild og vísar til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010.

12.Framlag til Starfsdeildar Verkmenntaskólans Akureyri 2010

Málsnúmer 1005077Vakta málsnúmer

Óskað er heimildar í fjárhagsáætlun 2010 til að afgreiða stofnframlag að upphæð kr. 1 milljón og 7 þúsund til starfsdeildar Verkmenntaskólans á Akureyri.

Bæjarráð samþykkir heimild og vísar til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010.

13.Ósk um auknar fjárheimildir fyrir sláttuliðið

Málsnúmer 1004060Vakta málsnúmer

Í tengslum við afgreiðslu 168. fundar bæjarráðs um aukna fjárheimild í laun sláttufólks að upphæð kr. 6,9 milljónir var bæjarstjóra falið að fara yfir launaáætlun með íþrótta- og tómstundafulltrúa ásamt skipulags- og byggingarfulltrúa.
Ekki var gert ráð fyrir launum varðandi slátt í fjárhagsáætlun og endurnýjar því bæjarstjóri beiðni um fjárheimild að upphæð 6,9 milljónir.

Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum umbeðna heimild og vísar til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010.
Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir sat hjá.


14.Efra skólahús, Siglufirði - beiðni um aukna fjárheimild

Málsnúmer 1005109Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði er beiðni um aukna fjárheimild að upphæð kr. 3 milljónir og 280 þúsund til allra nauðsynlegustu breytinga á skólahúsnæðinu við Hlíðarveg, Siglufirði, vegna sameiningar grunnskóla og fjölgunar nemenda nú í haust.

Bæjarráð samþykkir heimild og vísar til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010, er varðar sameiningarkostnað.

15.Fyrirspurn um álagningu rotþróargjalda

Málsnúmer 1005096Vakta málsnúmer

Bæjarfulltrúi Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir óskaði upplýsinga um hvernig staðið var að álagningu fráveitu-/rotþróargjalda á hús utan þéttbýlis í Fjallabyggð.
Fyrir liggur minnisblað vegna fyrirspurnar.
Lagt var á samkvæmt almennum álagningarreglum.
Bæjarráð samþykkir í ljósi upplýsinga, að sleppa álagningu rotþróargjalds fyrir árið 2010.
Jafnframt er ítrekað að farið verði yfir rotþróarmál í sveitarfélaginu og kostnaðar- og framkvæmdaráætlun verði gerð í kjölfar þess.

16.Starfslok Skarphéðins Guðmundssonar kennara við Grunnskóla Siglufjarðar

Málsnúmer 1005114Vakta málsnúmer

Í erindi skólastjóra Grunnskóla Siglufjarðar er óskað heimildar til að gera starfslokasamning við Skarphéðin Guðmundsson kennara.
Bæjarráð samþykkir heimild og vísar til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010, er varðar sameiningarkostnað.

17.Umsókn um rekstarleyfi

Málsnúmer 1005047Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti umsókn Rauðku hf. um rekstrarleyfi fyrir Hannes Boy Cafè/Þjónustumiðstöð Rauðku er varðar afgreiðslu staðsetningu og opnunartíma.

18.Rekstrarupplýsingar janúar-mars 2010

Málsnúmer 1005103Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar rekstrarupplýsingar sveitarfélagsins, fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2010.

19.Styrktarsjóður EBÍ

Málsnúmer 1005045Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands þar sem fram kemur að stjórn EBÍ hefur samþykkt að þetta árið yrði ekki óskað eftir umsóknum í sjóð EBÍ heldur myndi stjórnin verja úthlutunarfé hans til sérstakra brýnna verkefna í sveitarfélögum. Þessi ákvörðun er tekin þetta árið vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem eru nú hér á landi og er m.a. horft til þeirra hamfara sem hafa orðið í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli.

20.Ársreikningur 2009 - Síldarminjasafn Íslands ses

Málsnúmer 1005016Vakta málsnúmer

Ársreikningur Síldarminjasafns Íslands ses. fyrir árið 2009 lagður fram til kynningar.

21.Sveitarstjórnarkosningar 2010-Upplýsingar og leiðbeiningar-Kjörskrárstofn

Málsnúmer 1005089Vakta málsnúmer

Frá dóms- og mannréttindaráðuneyti hefur borist kjörskrárstofn frá Þjóðskrá, fyrirmæli og leiðbeiningar um meðferð vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí 2010.
Fjöldi á kjörskrá í Fjallabyggð samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár er 1579.
Gera þarf leiðréttingu vegna einstaklings sem fallið hefur frá eftir útgáfu kjörskrárstofns.
Eftir leiðréttingu eru 811 karlar og 767 konur á kjörskrá eða alls 1578.
Bæjarráð samþykkir framlagða kjörskrá með ofangreindum breytingum.

22.Framboðslistar í Fjallabyggð

Málsnúmer 1005063Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá yfirkjörstjórn um frambjóðendur og framboðslista í Fjallabyggð.

23.Breyting í undirkjörstjórn, Ólafsfirði

Málsnúmer 1004076Vakta málsnúmer

Bogi Sigurbjörnsson, f.h. B-lista kom á framfæri eftirfarandi breytingu
í undirkjörstjórn í Ólafsfirði.
Ruth Gylfadóttir tekur sæti Maríu Markúsdóttur, sem varamaður í undirkjörstjórn.

24.Fundagerðir Heilbr.nefndar Norðurlands vestra frá 4. mars og 27. apríl 2010

Málsnúmer 1005031Vakta málsnúmer

Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

25.Fundargerð 212. fundar Stjórnar Eyþings frá 30. apríl 2010

Málsnúmer 1005048Vakta málsnúmer

Fundargerð lögð fram til kynningar.

26.Fundargerð 774. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 1005064Vakta málsnúmer

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:15.