Beiðni um styrk til framboða vegna sveitarstjórnarkosninga 2010

Málsnúmer 1005070

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 170. fundur - 20.05.2010

Í erindi Alberts Gunnlaugssonar fyrir hönd nokkurra fyrirtækja í Fjallabyggð er skorað á sveitarfélagið að styrkja hvert framboð til sveitarstjórnarkosninga um kr. 500 þúsund.
Á þessu ári hefur verið úthlutað kr. 360 þúsund samtals til framboða sem höfðu kjörfylgi við síðustu sveitarstjórnarkosningar, og samþykkir bæjarráð aukalega kr. 50 þúsund til hvers framboðs.