Bæjarráð Fjallabyggðar

575. fundur 09. október 2018 kl. 16:30 - 17:30 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Helga Helgadóttir formaður, D lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, I lista
  • Særún Hlín Laufeyjardóttir varamaður, H lista
Starfsmenn
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Trúnaðarmál - starfsmannamál

Málsnúmer 1709048Vakta málsnúmer

Niðurstaða bókuð í trúnaðarbók.

2.Evrópsk ráðstefna í MTR um upplýsingatækni í kennslu 15. - 19. okt 2018

Málsnúmer 1808059Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað deildarstjóra fræðslu,- frístunda- og menningardeildar dags. 03.10.2018 vegna skipulags og kostnaðar við móttöku gesta á ráðstefnuna EcoMedia europe sem haldin verður í MTR dagana 15.- 19. október nk.
Ráðstefnugestir verða 80 talsins auk skipuleggjanda.

Áætlaður kostnaður við móttöku er kr. 557.168
og vegna þátttökugjalds fulltrúa leik- og grunnskóla Fjallabyggðar kr. 226.000.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kostnað vegna móttöku og þátttökugjalds fulltrúa grunn- og leikskóla Fjallabyggðar samtals kr. 783.162.
Kostnaður vegna móttöku kr. 557.168 verður gjaldfærður af liðum 2150-4413, 21510-4230 og 21510-4925.

Kostnaði vegna þátttökugjalds fulltrúa grunn- og leikskóla kr. 226.000 er vísað til viðauka nr.14/2018 sem mætt verður með lækkun á handbæru fé af liðum 04210-4280 kr. 176.000 og 04110-4280 kr. 50.000.

3.Fyrirspurn um lóðir undir frístundahús í landi Hólkots

Málsnúmer 1809098Vakta málsnúmer

Á 231. fundi skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar þann 03.10.2018 sl. var tekin fyrir umsókn frá Aurélien Votat þar sem óskað er eftir lóðum í landi Hólkots undir tvö til fjögur frístundahús. Niðurstaða skipulags- og umhverfisnefndar var að leggja til við bæjarráð að úthluta umsækjendum umræddu svæði undir frístundahús og fela nefndinni að vinna deiliskipulag af svæðinu.

Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðunum og fela tæknideild að vinna deiliskipulag af svæðinu.

4.Fyrirspurn vegna flugvallar á Siglufirði

Málsnúmer 1809027Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að svari bæjarstjóra Fjallabyggðar dags. 25. september 2018 vegna fyrirspurnar Jóns Valgeirs Baldurssonar fh. H-lista vegna Siglufjarðarflugvallar.

Áætlaður kostnaður sveitarfélagsins vegna framkvæmda við Siglufjarðarflugvöll er kr. 7.2 mkr. og er tekinn af framkvæmdaliðnum ýmis smáverk.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að svari og felur bæjarstjóra að senda afrit af svari á trolli.is vegna fyrirspurnar um Siglufjarðarflugvöll.

5.Tilboð í ræstingu á Leikhólum Ólafsfirði

Málsnúmer 1809072Vakta málsnúmer

Málinu frestað þar til umbeðin gögn liggja fyrir.

6.Húsaleigusamningur Sellu tannlækna ehf

Málsnúmer 1802070Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Sellu tannlækna ehf. dags. 03.10.2018 þar sem ítrekað er erindi til sveitarfélagsins dags. 17.02.2018 þar sem Sella tannlæknar ehf óskar eftir lækkun á leiguverði vegna aðstöðu í Hornbrekku Ólafsfirði þar sem notkun hefur ekki verið í samræmi við upprunalegar áætlanir vegna skorts á tannlæknum á landsbyggðinni.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar að eiga viðræður við forsvarsmenn Sellu tannlækna ehf.

7.Staða og framkvæmd sveitarfélaga í húsnæðismálum utangarðsfólks

Málsnúmer 1810045Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Velferðarráðuneytisins, dags. 4. október 2018 er varðar beiðni um upplýsingar um stöðu og framkvæmd sveitarfélaga í húsnæðismálum utangarðsfólks.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn deildarstjóra félagsmáladeildar.

8.Íbúðir í byggingu og lausar lóðir - könnun

Málsnúmer 1810046Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), dags. 2. október 2018 þar sem óskað er eftir þátttöku sveitarfélaga í könnun er varðar stöðu fasteignamarkaðar á landinu.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra tæknideildar að svara erindinu og leggja fyrir bæjarráð.

9.Málþing: Ferðamál á umbrotatímum - Samfélagslegar áskoranir og vísindi

Málsnúmer 1810009Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Vísindafélags Íslendinga þar sem fram kemur að Vísindafélag Íslendinga ásamt Rannsóknarmiðstöð ferðamála við Háskólann á Akureyri hyggst standa fyrir málþingi um ferðamál á umbrotatímum í Háskólanum á Akureyri í sal M102 laugardaginn 13. október kl. 13.30.

Flutt verða þrjú erindi þar sem sjónum verður beint að rannsóknum á þolmörkum ferðaþjónustunnar, áhrifum ferðamennsku á landsbyggðirnar og þróun ferðaþjónustunnar í ljósi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni.

Nánari upplýsingar um málþingið má finna á
https://www.facebook.com/events/158486025086631/ http://www.fullveldi1918.is/is/dagskra-arsins/visindi-og-samfelag-1 https://visindafelag.is/aldarafmaeli/malthing-2018-3/

10.Haustráðstefna - Vellíðan á vinnustað

Málsnúmer 1810013Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Hagvangs, dags. 01.10.2018 er varðar haustráðstefnuna „Vellíðan á vinnustað ? Allra hagur“ sem fram fer á Grand Hótel 23. október nk. kl. 8:30-11:00.

11.Frá nefndasviði Alþingis - 25. mál til umsagnar

Málsnúmer 1810003Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, dags. 28. september 2018 er varðar umsögn um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum, 25. mál.

12.LEX lögmannsstofa á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2018

Málsnúmer 1810026Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi Lex lögmannsstofu, dags. 1. október 2018 þar sem fram kemur að lögmannsstofan muni bjóða upp á kynningu á þjónustu sinni fyrir sveitarfélög á Fjármálaráðstefnu Sambandsins 11. og 12. október nk.

13.Fundargerðir stjórnar Eyþings - 2018

Málsnúmer 1801006Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 310. fundargerð Stjórnar Eyþings frá 26. september sl.

Fundi slitið - kl. 17:30.