Íbúðir í byggingu og lausar lóðir - könnun

Málsnúmer 1810046

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 575. fundur - 09.10.2018

Lagt fram erindi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), dags. 2. október 2018 þar sem óskað er eftir þátttöku sveitarfélaga í könnun er varðar stöðu fasteignamarkaðar á landinu.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra tæknideildar að svara erindinu og leggja fyrir bæjarráð.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 577. fundur - 23.10.2018

Lagt fram til kynningar minnisblað skipulags- og tæknifulltrúa dags. 12. 10 2018 vegna svars við vefkönnun Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi vegna stöðu fasteignamarkaðar á landinu.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til kynningar í skipulags- og umhverfisnefnd og óskar eftir því við markaðs- og menningarfulltrúa að gerð verði frétt um niðurstöðu könnunarinnar á vef sveitarfélagsins.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 233. fundur - 07.11.2018

Lagt fram til kynningar minnisblað skipulags- og tæknifulltrúa dags. 12.10.2018 vegna svars við vefkönnun Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi vegna stöðu fasteignamarkaðar á landinu.
Vísað til nefndar