Bæjarráð Fjallabyggðar

555. fundur 08. maí 2018 kl. 12:00 - 13:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Steinunn María Sveinsdóttir formaður, S lista
  • S. Guðrún Hauksdóttir varaformaður, D lista
  • Hilmar Þór Elefsen aðalmaður, S lista
  • Jón Valgeir Baldursson áheyrnarfulltrúi, B lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu- og fjármála
Fundargerð ritaði: Guðrún Sif Guðbrandsdóttir deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála

1.Staðgreiðsla tímabils - 2018

Málsnúmer 1801014Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir staðgreiðslu útsvars frá 1. janúar til 30. apríl 2018. Innborganir nema 328.145.774 kr. sem er 97,5% af tímabilsáætlun, sem gerði ráð fyrir 336.695.066 kr.

2.Afskriftir viðskiptakrafna - 2018

Málsnúmer 1801077Vakta málsnúmer

Niðurstaða bókuð í trúnaðarbók.

3.Skólamáltíðir

Málsnúmer 1604082Vakta málsnúmer

Þjónustusamningur sem er í gildi vegna skólamáltíða fyrir Grunnskóla Fjallabyggðar rennur út 5. júní nk.

Bæjarráð samþykkir að gerð verði skrifleg verðfyrirspurn, skv. 20. gr. innkaupareglna Fjallabyggðar og send þjónustuaðilum. Samningur verður gerður til tveggja ára með möguleika á framlengingu til eins árs.

Bæjarráð felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningamála afgreiðslu málsins.


4.Starf rekstar- og umsjónaraðila tjaldsvæða Fjallabyggðar

Málsnúmer 1804017Vakta málsnúmer

Auglýst var eftir rekstrar- og umsjónaraðila tjaldsvæðis Fjallabyggðar á Siglufirði.

Eftirtaldir aðilar sendu inn umsókn:

Kjarabakki ehf.
Útlagi ehf.

Lagt fram minnisblað frá deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála, þar sem lagt er til að gengið verði til samninga við Kjarabakka ehf. til eins árs.

Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Kjarabakka ehf. og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála afgreiðslu málsins.

5.Erindi Framfarafélags Ólafsfjarðar ehf

Málsnúmer 1804006Vakta málsnúmer

Jón Valgeir Baldursson vék undir þessum lið.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar barst erindi frá Framfarafélagi Ólafsfjarðar dags. 31/3 2018. Þar óskar félagið eftir helgun á tilteknu landrými í Ólafsfirði, sem nýta á til atvinnureksturs á svæðinu, aðallega með fiskeldi í huga.

Bæjarráð fagnar þessu framtaki Framfarafélagsins um hugsanlega atvinnuuppbyggingu á svæðinu.
Á hluta af þessu tiltekna svæði er ýmis starfsemi, sem verður ekki hróflað við nema með ærnum kostnaði bæjarsjóðs og breytingum á deili- og aðalskipulagi.

Bæjarráð telur hyggilegast, að nálgast málið þannig, að bæjarráð Fjallabyggðar muni ekki ráðstafa neinu af hinu tiltekna landi til annarra aðila meðan athugun og undirbúningur af atvinnustarfsemi á svæðinu á vegum Framfarafélags Ólafsfjarðar stendur yfir.

Bæjarráð gefur félaginu tvö ár til að komast að niðurstöðu um mögulega atvinnuuppbyggingu. Engar kröfur um greiðslur til bæjarfélagsins vegna hins tiltekna lands verða settar fram af hálfu Fjallabyggðar á þeim tíma.

Þá lýsir bæjarráð sig tilbúið að aðstoða félagið við rannsóknir og gagnaöflun.

6.Hólavegur 18 Siglufirði - skemmdir

Málsnúmer 1805018Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá eigendum húseignarinnar Hólavegi 18, Siglufirði þar sem lýst er skemmdum á húsinu sem þeir telja að megi rekja til framkvæmda við snjóflóðavarnargarða. Óskað er eftir óháðu mati á skemmdum á húsinu.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til Ofanflóðasjóðs og deildarstjóra tæknideildar.

7.Fyrirspurn frá UMFÍ; Framlag sveitarfélaga til íþrótta- og ungmennafélaga

Málsnúmer 1805001Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fyrirspurn frá Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) þar sem óskað er eftir upplýsingum um beint framlag sveitarfélagsins til íþrótta- og ungmennafélaga í sveitarfélaginu.

Bæjarráð felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að svara erindinu og leggja svarið fyrir næsta fund bæjarráðs.

8.Ósk um þátttöku í lokuðum útboðum

Málsnúmer 1805003Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Aval ehf. þar sem óskað er eftir því að fyrirtækið fái að taka þátt í lokuðum útboðum á vegum Fjallabyggðar. Fyrirtækið sérhæfir sig í fráveitu og fóðrun á lögnum.

Bæjarráð óskar eftir umsögn deildarstjóra.

9.IOGT - Umsögn um frumvarp 389, 287 mál

Málsnúmer 1805002Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar umsögn bindindisfélagsins IOGT á Íslandi um frumvarp um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak.

10.Umbótaáætlun Leikskóla Fjallabyggðar - byggð á ytra mati

Málsnúmer 1805009Vakta málsnúmer

Uppfærð umbótaáætlun Leikskóla Fjallabyggðar byggð á ytra mati skólans, sem gerð var í september 2017, hefur verið sent til Mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Ráðuneytið mun óska eftir greinargerð í desember 2018 um framkvæmd umbótaáætlunarinnar fram að þeim tíma.

11.Tilkynning vegna fyrirhugaðrar hækkunar framlega til AFE

Málsnúmer 1805010Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Stjórn félagsins leggur til að framlög sveitarfélaga til félagsins hækki um 3%. Þannig verði framlög á árinu 2018 kr. 1.716 á hvern íbúa, í stað kr. 1.666 árið 2017. Miðað er við íbúafjölda sveitarfélagsins 1. desember 2017. Aðalfundur félagsins verður haldinn 21. júní nk.

Hlutur Fjallabyggðar hækkar um 101.700 krónur.

Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar upphæðinni til viðauka við fjárhagsáætlun 2018 sem kemur til lækkunar á handbæru fé.

12.Ársfundur Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar

Málsnúmer 1804135Vakta málsnúmer

Aðalfundur Símeyjar verður haldinn miðvikudaginn 2. maí nk., kl. 14.00. Fundurinn verður haldinn í aðalstöðvum miðstöðvarinnar að Þórsstíg 4, Akureyri.

Lagt fram til kynningar.

13.Frá nefndasviði Alþingis - 269. mál til umsagnar

Málsnúmer 1805008Vakta málsnúmer

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um Kristnisjóð ofl. (ókeypis lóðir), 269. mál.

Lagt fram til kynningar.

14.Tímabundið tækifærisleyfi og tímabundið áfengisleyfi

Málsnúmer 1805020Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar Sjómannafélags Ólafsfjarðar kt. 610183-0269 um tímabundið tækifærisleyfi frá 3. júní frá kl. 18:00 til kl. 03:00 þann 4. júní nk.

Bæjarráð samþykkir tækifærisleyfið fyrir sitt leyti.

15.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2018

Málsnúmer 1801009Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 859. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var 27. apríl sl.

16.Fundargerðir stjórnar Eyþings - 2018

Málsnúmer 1801006Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 305. fundar stjórnar Eyþings sem haldinn var 2. maí sl.

Fundi slitið - kl. 13:00.