Þeir unglingar sem hafa skráð sig í vinnuskóla Fjallabyggðar eiga að mæta þriðjudaginn 5. júní
nk. kl. 8:30 í þjónustumiðstöð.
Skráning fór fram í Grunnskóla Fjallabyggðar 21. maí sl. Ef þú átt eftir að skrá
þig vinsamlegast hafðu samband við undirritaðan fyrir 1. júní nk.
Rétt til vinnu hafa eftirfarandi:
- Árg. 1998: 4 vikur ½ daginn
- Árg. 1997: 5 vikur allan daginn, (þó ekki eftir hádegi á föstudögum).
- Árg. 1996: 6 vikur allan daginn
Skilyrði er að viðkomandi eða a.m.k. annað foreldri hafi lögheimili í Fjallabyggð eða viðkomandi hafi
stundað nám við Grunnskóla Fjallabyggðar í vetur.
Nánari upplýsingar veitir Íþrótta- og tómstundafulltrúi
gisli@fjallabyggd.is / 464-9200