Þeir nemendur sem hafa skráð sig til vinnu í Vinnuskóla Fjallabyggðar fá eftirfarandi vinnu:
- Árgangur 2003: mætir 8. júní kl. 8:30 (*fær vinnu í 5 vikur)
- Árgangur 2002: mætir 8. júní kl. 8:30 (*fær vinnu í 7 vikur)
- Árgangur 2001: mætir 8. júní kl. 8:30 (*fær vinnu í 9 vikur)
*Um viðmið er að ræða og er hugsanlega meiri vinna í boði.
Nemendur á Siglufirði eiga að mæta í þjónustumiðstöð, nemendur í Ólafsfirði eiga að mæta við aðstöðu Þjónustumiðstöðvar við Námuveg.
Ef einhver á eftir að skrá sig er hægt að hafa samband við undirritaðan. Einnig er hægt að hafa samband ef viðkomandi tímabil hentar illa.
Haukur Sigurðsson
Forstöðumaður íþróttamiðstöðva og vinnuskóla Fjallabyggðar.
Gsm: 863-1466 og haukur@fjallabyggd.is