Bæjarstjórn Fjallabyggðar býður upp á viðtalstíma með bæjarfulltrúum einu sinni í mánuði og var fyrsti fundur haldinn 28 janúar sl.
Fundirnir verða haldnir síðasta mánudag hvers mánaðar, til skiptis á Siglufirði og í Ólafsfirði og eru íbúar Fjallabyggðar hvattir til að koma og hitta bæjarfulltrúa og ræða málefni sveitarfélagsins.
Næsti viðtalstími bæjarfulltrúa verður í dag mánudaginn 29. apríl að Gránugötu 24, Siglufirði kl. 16:30-17:30.
Til viðtals verða bæjarfulltrúarnir Ingibjörg S. Jónsdóttir, S. Guðrún Hauksdóttir og Særún Hlín Laufeyjardóttir.
Ingibjörg S. Jónsdóttir S. Gruðún Hauksdóttir Særún Hlín Laufeyjardóttir
Dagatal 2019
