Viðtalstímar bæjarfulltrúa Fjallabyggðar hefjast á ný 28. september nk. á Siglufirði

Bæjarstjórn Fjallabyggðar býður upp á viðtalstíma með bæjarfulltrúum einu sinni í mánuði. Fundirnir verða haldnir síðasta mánudag hvers mánaðar, til skiptis á Siglufirði og í Ólafsfirði.

Fyrsti viðtalstími bæjarfulltrúa verður mánudaginn 28. september nk. á Siglufirði frá kl. 16:30-17:30. Að þessu sinni taka þau Ingibjörg G. Jónsdóttir, S. Guðrún Hauksdóttir og Særún Hlín Laufeyjardóttir á móti íbúum.

Næstu viðtalstímar bæjarfulltrúa verða:
Mánudaginn 26. október nk. að Ólafsvegi 4. Ólafsfirði kl. 16:30-17:30 en þá taka þau Nanna Árnadóttir, I-lista, Tómas Atli Einarsson, D-lista og Jón Valgeir Baldursson, H-lista á móti íbúum.

Mánudaginn 30. nóvember að Gránugötu 24, Siglufirði kl. 16:30-17:30 en þá taka þau Ingibjörg G. Jónsdóttir, I-lista, Helga Helgadóttir D-lista og Særún Hlín Layfeyjardóttir H-lista á móti íbúum.

Íbúar Fjallabyggðar eru hvattir til að koma og hitta bæjarfulltrúa og ræða málefni sveitarfélagsins.