Viðburðadagatal á aðventu í Fjallabyggð 2021-2022

Undanfarin ár hefur viðburðadagatal verið gefið út á vegum Fjallabyggðar þar sem m.a. er tíunduð dagskrá s.s. þjónustuaðila, kirkjunnar, félaga, safna, setra, skóla, tónleika, jólamarkaða, miðbæjarstemning og annað sem fylgir því að njóta töfra aðventunnar.

Í á stendur til að gefa dagatið út og dreifa því í Fjallabyggð en einnig verður það rafrænt á vef en með rafræna dagatalinu verður hægt að uppfæra viðburði eftir því sem við á hverju sinni og þörf krefur. 

Þeir aðilar sem ráðgera að bjóða upp á afþreyingu eða aðra dagskrá á aðventu og vilja nýta sér rafrænt dagatal Fjallabyggðar eru hvattir til að senda upplýsingar þar um rafrænt á vef Fjallabyggðar

Þeir sem óska eftir því að fá viðburð í prentað dagatal vinsamlegast komið upplýsingum um viðburði  til markaðs- og menningarfulltrúa á netfangið lindalea@fjallabyggd.is eða á rafrænum hlekk hér. Athugið að frestur til að skila inn viðburðum fyrir prentað dagatal er til 23. nóvember nk.

Rafrænt eyðublað viðburða