Vegna opnunar tilboða í breytingar á Ólafsvegi 4

Fjallabyggð auglýsti útboð vegna breytinga á Ólafsvegi 4, Ólafsfirði þann 9. maí síðastliðinn. Fyrirhugaðar breytingar fela í sér að húsnæðinu verður breytt í bókasafn og þjónustu- og upplýsingamiðstöð. Ráðgert var að opna tilboð í breytingarnar þann 4. júní 2014 kl. 14:00 en engin tilboð bárust.