Útivistartími barna og unglinga

Útivistartími barna og unglinga breytist að venju 1. september ár hvert og verður eftirfarandi til 1. maí nk, :

12 ára börn og yngri mega vera úti til kl. 20:00

13-16 ára börn mega vera úti til kl. 22:00

Útivistarreglur eru samkvæmt barnaverndarlögum. Börn mega ekki vera á almannafæri utan ofangreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglum þegar börn 13-16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta-, eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.