Tæknideild Fjallabyggðar óskar eftir tilboðum í snjómokstur og hálkuvarnir í Fjallabyggð 2011 - 2013
Verkefnið felst í hreinsun á snjó og krapa af götum, gangstígum og bifreiðastæðum ásamt snjómokstri og akstri, auk sandburðar eða saltdreifingar á götur, gangstíga og bifreiðastæði í Fjallabyggð.
Útboðsgögn verða afhent í ráðhúsi Fjallabyggðar að Gránugötu 24, Siglufirði og bæjarskrifstofum Ólafsvegi 4, Ólafsfirði frá kl. 10:00 þann 10. janúar 2011.
Tilboði skal skila í ráðhús Fjallabyggðar 3. hæð á Siglufirði þann 21. janúar 2011 eigi síðar en kl 13:00 og verða þau þá opnuð í fundarsal ráðhúss á 2. hæð að viðstöddum bjóðendum, eða fulltrúum þeirra, sem mættir verða.
Ármann Viðar Sigurðsson
Deildarstjóri tæknideildar