Fjallabyggð óskar eftir
tilboðum í jarðvinnu vegna stækkunar á grunnskóla Fjallabyggðar við Norðurgötu 10 á Siglufirði.
Um er að ræða viðbyggingu á tveimur hæðum 465 fermetrar að stærð.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 860m3
Fylling 400m3
Girðing 124m
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 29.
nóvember2013.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á krónur
2.000 á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði frá og með miðvikudeginum 16. október 2013.
Tilboðin verða opnuð á sama stað hjá bæjartæknifræðingi Fjallabyggðar föstudaginn 30. október 2013 klukkan 14.00 að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Deildarstjóri tæknideildar.