Uppskeruhátíð Þjóðlagaseturs 2018

Þann 31. ágúst er að vanda síðasti sumaropnunardagur Þjóðlagasetursins og þá um kvöldið verður haldin uppskeruhátíð á Brugghúsi Seguls 67. Hjónin Írís Ólöf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Hjartarson frá Tjörn í Svarfaðardal flytja nokkra velvalda söngva. Eyjólfur Eyjólfsson leikur á langspil og meðlimir úr Kvæðamannafélaginu Rímu kveða, syngja tvísöngva og leiða fjöldasöng.

Kvöldstundin hefst klukkan 20:30 og verður bar brugghússins opinn þar sem gestir geta valið milli nokkurra siglfirskra bjórtegunda.

Ókeypis aðgangur og allir velkomnir!

Viðburður á Facebook