Tilkynning vegna sorphirðu

Samkvæmt sorphirðudagatali Fjallabyggðar á að tæma Grænu tunnuna á Siglufirði í dag og á morgun.  Vegna veðurs færist sorphirða aftur um einn dag og verður því 10. og 11. febrúar. Af þessum sökum færist sorphirða í Ólafsfirði einnig til og verður Græna tunnan hjá Ólafsfirðingum tæmd 12. og 13. febrúar.