Þrettándagleði og brenna

Mynd: www.siglo.is
Mynd: www.siglo.is

Þrettándabrenna og flugeldasýning Kiwanisklúbbsins Skjaldar í samvinnu við Björgunarsveitina Stráka á Siglufirði og 10. bekk grunnskóla Fjallabyggðar verður á Siglufirði sunnudaginn 6. janúar nk.

Blysför verður frá ráðhústorginu kl. 17:00 að brennu. Allir hvattir til að mæta í grímubúningum. Eftir brennu kl. 18:30-20:00 verður barnaskemmtun Kiwanis (grímuball) á Rauðku.