Þrettándabrenna og flugeldasýning í dag.

Í dag eru jólin kvödd.  Af því tilefni verður árleg Þrettándabrenna og flugeldasýning Kiwanisklúbbsins Skjaldar í samvinnu við 10. bekk G.F. 
Blysför verður frá Ráðhústorginu kl. 18:00 að brennu. Eru allir hvattir til að mæta í grímubúningum. Eftir brennu verður diskó á Allanum fyrir börnin.
Ágætis veðurspá er fyrir daginn í dag, norðaustan 5 - 7 m/sek og örlítil úrkoma.