Teikninámskeið í Alþýðuhúsinu

Teikninámskeið verður haldið í Alþýðuhúsinu á Siglufirði dagana 8.-12. og 15.-19. febrúar 2016

Kennari: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir

Börn 8-11 ára kl. 16:00 – 17:00. 10 skipti, 10.000 kr. námskeiðið.
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á hugmyndaflug, skapandi lausnir og þrívídd.

Börn og unglingar 12 – 15 ára. kl. 17:15 – 18:15. 10 skipti. 10.000 kr. námskeiðið
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á frjálsa tjáningu, hugmyndaflug og teikningu með ólíkum verkfærum.

16 ára og fullorðnir kl. 19:30 til 21:30 10 tímar, mánud. miðvikudag, föstudag, mánudag og miðvikudag. 15.000 kr. námskeiðið.
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á grunnteikningu, einstaklingsmiðaða kennslu, frjálst flæði og óhefðbundnar aðferðir.

Þátttakendur koma með A3 teikniblokk, HB, 2 HB blýanta og (5 HB er val) , gott strokleður, artline svartan penna nr. 0,2 og 0,5. Tússliti, stóran tússpenna til uppfyllingar, tréliti eða annað sem viðkomandi á. Allt annað efni og áhöld eru á staðnum.

Athugið að aðeins er tekið við 10 manns í hvern hóp og að námskeiðin verða ekki haldin ef ekki næst næg þátttaka.

Skráning og nánari upplýsingar fyrir 4. feb. hjá Aðalheiði í síma 865-5091 eða adalheidur@freyjulundur.is eða með skilaboðum á facebook.

Teikninámskeið í Alþýðuhúsinu Siglufirði