SVÆÐISSKIPULAG EYJAFJARÐAR 2012 – 2024

Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar hefur á fundi sínum hinn 26. nóv. 2013 samþykkt tillögu að svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012 – 2024.  
Með vísan til 3. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 hefur nefndin jafnframt sent tillögu sína til afgreiðslu Skipulagsstofnunar sem skal innan fjögurra vikna staðfesta skipulagstillöguna og auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda. 

Í kjölfar auglýsingar á tillögunni til athugasemda bárust athugasemdir frá þremur aðilum. Athugasemdirnar gáfu ekki tilefni til efnislegra breytinga á tillögunni og var hún því samþykkt óbreytt á fyrrnefndum fundi nefndarinnar. 

Athugasemdir við tillöguna og umsagnir nefndarinnar við þær má nálgast á vefsíðunni www.esveit.is

Eyjafjarðarsveit 3. des. 2013.

Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar.