Sumarstörf í Íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar frá 1. júní til 31. ágúst 2023

Sumarstörf í Íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar frá 1. júní til 31. ágúst 2023.

Starfsstöður í boði

  •  Sumarafleysingar í Íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar.
  •  Starfstöðvar eru á Siglufirði og Ólafsfirði.
  •  Kona í 80% starf, aðalstarfsstöð Ólafsfirði.
  •  Kona í 90% starf, aðalstarfsstöð Siglufirði.
  •  Karl í 100% starf, aðalstarfsstöð Ólafsfirði.
  •  Karl í 100% starf, Ólafsfirði og Siglufirði.
  •  Allir starfsmenn verða að vera reiðubúnir að vinna á báðum starfstöðvum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  •  Eftirlit og gæsla í sundlaug.
  •  Almenn afgreiðsla og uppgjör í lok vaktar.
  •  Þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
  •  Almenn þrif og annað sem til fellur.

Menntunar- og hæfnikröfur

  •  Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri, hafa bílpróf og bíl til umráða.
  •  Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt. reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
  •  Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum.
  •  Góð kunnátta í íslensku er skilyrði, enska og þriðja tungumál er kostur.

Vinnutími: Um er að ræða morgunvaktir kvöldvaktir og helgarvaktir.

Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknir skulu sendar með tölvupósti á skarphedinn@fjallabyggd.is og skal umsókn fylgja starfsferilskrá með umsagnaraðilum og kynningarbréf.

Umsækjendur þurfa að gefa leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá komi þeir til greina í starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2023 og verður öllum umsóknum svarað.

Nánari upplýsingar veitir Skarphéðinn Þórsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar á netfangið skarphedinn@fjallabyggd.is eða í síma   866 9136