Sumarlestur á bókasafninu

Nú er sumarlesturinn að hefjast og hvetjum við alla krakka til að koma á bókasafnið og ná sér í sumarlestursbækling. Sumarlesturinn stendur frá 1. júní til 31. ágúst en hægt verður að skila inn bæklingum til 15. september. Gott er að nýta sumarið í að viðhalda lestrarkunnáttunni og nóg er til af skemmtilegum bókum á bókasafninu. Þetta er ekki keppni um hver les mest, allir fá viðurkenningu og smáverðlaun þegar sumarlestrinum líkur.