Styrkir til nýsköpunar og þróunar

Vaxtarsamningur Eyjarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna verkefna sem geta eflt nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífs á Eyjafjarðarsvæðinu.
Vaxtarsamningur Eyjafjarðar er samningur milli atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Eyþings og Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Núverandi samningur gildir fyrir árið 2014. Meginmarkmið samningsins er að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífsins á starfssvæði Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og auka hagvöxt með virku samstarfi fyrirtækja, háskóla, sveitarfélaga og ríkisins. Áhersla skal vera á stærri og veigameiri samvinnuverkefni, sem hafa það markmið að efla nýsköpun og þróun í atvinnulífi svæðisins. Verkefni skulu fela í sér samstarf þriggja eða fleiri aðila.

Næsta úthlutun verður í nóvember og þurfa umsóknir að berast eigi síðar en 22. október.

Umsóknum skal skila með tölvupósti á netfangið baldvin@afe.is

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þær áherslur og skilyrði sem í samningum felast, reglur um styrkhæfan kostnað, sem og verklagsreglur stjórnar. Öll viðeigandi gögn má nálgast hér á heimasíðunni www.afe.is/vaxey