Styrkir til menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum
Stofnaður hefur verið nýr sjóður, Uppbyggingasjóður Norðurlands eystra. Sjóðurinn er hluti af samningi um Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019 sem undirritaður var í febrúar sl. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og tekur við hlutverki Menningarráðs Eyþings, Vaxtarsamnings Eyjafjarðar og Vaxtarsamnings Norðausturlands og veitir verkefnastyrki til menningarverkefna, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarmála.
Í ár lítur uppbyggingasjóður sérstaklega til verkefna sem jafna stöðu kynjanna og aldurshópa á svæðinu. Auk þess hafa þær umsóknir forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna skilyrða.
Á sviði menningar:
· Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra
· Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista
· Verkefni sem fela í sér listsköpun fólks á aldrinum 18-25 ára
· Verkefni sem fela í sér samstarf við önnur lönd á sviðið menningar og lista

Á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar:
· Verkefni sem stuðla að nýtingu auðlinda svæðisins til atvinnusköpunar
· Verkefni sem til þess eru fallin að auka fjölbreytni atvinnutækifæra
· Verkefni sem stuðla að samstarfi atvinnulífs, háskóla og þekkingarstofnana
· Verkefni sem efla nýsköpun og atvinnuþróun

Umsóknum skal skilað rafrænt til uppbyggingarsjóðs á netfangið uppbygging@eything.is á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna. Umsóknarfrestur er til og með 13. maí. Tilkynnt verður um úthlutun í júní. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér verklagsreglur uppbyggingarsjóðs á heimasíðu Eyþings www.eything.is

Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra veita:
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menning@eything.is sími 464 9935
Baldvin Valdimarsson baldvin@afe.is sími 460 5701
Reinhard Reynisson reinhard@atthing.is 464 0415
Ari Páll Pálsson aripall@atthing.is sími 464 0415
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið uppbygging@eything.is

Uppbyggingarsjóður auglýsir viðveru menningarfulltrúa og starfsmanna atvinnuþróunarfélaganna vegna úthlutunar styrkja úr sjóðnum. Viðtalstímar verða sem hér segir: 

Ólafsfjörður 6. maí kl. 13:00 - 14:00 Bæjarskrifstofu Ólafsfjarðar
Siglufjörður 6. maí kl. 14:30 - 16:00 Bæjarskrifstofu Siglufjarðar

Akureyri 7. maí kl. 9:00 - 16:00 Skrifstofu menningarfulltrúa, Hafnarstræti 91, 3. hæð

Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi.